Pressan

Blaðamaður segir fegurðardrottninguna hafa treyst sér fyrir ásökununum gegn Trump löngu áður en hún steig fram

Mynd

Fegurðardrottningin Beatrice Keul hefur sakað Donald Trump Bandaríkjaforseta um nauðgun árið 1993 þegar hún keppti í fegurðarsamkeppni á hans vegum í Plaza-hótelinu. Keul hefur greint frá ásökunum sínum opinberlega en um þær er einnig fjallað í skýrslu demókrata í dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem kom út á dögunum í tengslum við Epstein-málið umdeilda.

Talsmenn Trump segja ekkert hæft í þessum ásökunum og hafa sakað demókrata um örvæntingafulla tilraun til afvegaleiðingar. Sumir hafa eins velt því fyrir sér hvers vegna fegurðardrottningin hafi ekki stigið fram með ásakanir sínar fyrr en eftir að Trump varð forseti.

Sjá einnig: Fyrrum Ungfrú Sviss segir Trump hafa lofað öllu fögru áður en hann nauðgaði henni á hótelherbergi árið 1993

Svissneski fréttamiðillinn SRF segir vinur Keul, sem mun vera svissneskur blaðamaður, staðfesta að Keul hafi greint honum frá meintri nauðgun mörgum árum áður en fegurðardrottningin steig fyrst fram, árið 2024.

Einnig hefur verið bent á að þegar Keul steig fyrst fram hafi hún lýst því fyrir fjölmiðlum að Trump hafi reynt að nauðga henni en hún hafi náð að telja hann frá því. Árið 2025 lýsti hún þó við The New York Times að hún hafi ekki sagt alla söguna þar sem henni hafi borist nafnlausar hótanir. Áðurnefnd skýrsla demókrata mun byggjast á viðtölum nefndarmanna við Keul sem stóðu yfir í nokkrar vikur. Keul hafði ekki áður greint opinberlega frá öllum atvikum meintrar nauðgunar.

Keul segir í samtali við SFR að fyrirspurnum hafi rignt inn til hennar frá fjölmiðlum eftir að skýrslan birtist og bætti hún við: „Ég er hlutlaus og hef engra pólitískra hagsmuna að gæta.“