Aðstandendur fórnarlamba eins mannskæðasta harmleiks í sögu Suður-Kóreu eru ævareiðir eftir að í ljós kom að raunverulegt myndefni frá harmleiknum hafði verið notað í nýjasta Call of Duty-tölvuleiknum.
Á myndskeiðunum má meðal annars sjá fólk reyna að endurlífga fórnarlömb sem liggja á götunni. Aðstandendur krefjast þess að myndefnið verði þegar í stað fjarlægt úr leiknum.
Um er að ræða upptökur frá því í október árið 2022 þegar 158 manns létust í gríðarlegum troðningi í Itaewon, vinsælu skemmtanahverfi í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu. Þúsundir höfðu safnast saman í hverfinu til að fagna hrekkjavökunni þegar gríðarlegur troðningur myndaðist í þröngu húsasundi með þeim afleiðingum að 158 létust.
„Okkur blöskrar“
Breska blaðið The Guardian greinir frá því að myndskeiðin birtist í upphafi tölvuleiksins Call of Duty: Modern Warfare 4, þar sem þau eru notuð til að sýna mannfall meðal óbreyttra borgara í ímyndaðri innrás Norður-Kóreu í Suður-Kóreu.
Í einu myndskeiðinu má sjá einstakling framkvæma hjartahnoð á fórnarlambi sem liggur á götunni. Í öðru sjást lík liggja í röðum og sjúkraliðar bera fórnarlamb á börum.
„Okkur blöskrar að raunverulegar myndir frá þessum skelfilegu atburðum, þar sem fólk reyndi í örvæntingu að bjarga mannslífum með hjartahnoði á meðan fórnarlömb lágu á kaldri götunni, hafi verið notaðar óbreyttar í tölvuleik,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu samtaka aðstandenda fórnarlambanna og fleiri samtaka í Suður-Kóreu.
Aðstandendurnir benda á að fjölmargir þeirra sem tóku þátt í björgunaraðgerðum eða urðu vitni að harmleiknum glími enn við alvarleg sálræn áföll.
Activision svarar gagnrýninni
Suðurkóreskir tölvuleikjaspilarar komu fyrst auga á upptökurnar eftir að leikurinn kom út þann 23. október síðastliðinn. Í kjölfarið birtu þarlendir sjónvarpsmiðlar samanburð á atriðum úr leiknum og raunverulegum fréttaupptökum frá harmleiknum.
Samtök tölvuleikjanotenda í Suður-Kóreu hafa nú krafist þess að útgefandi leiksins, Activision, biðjist opinberlega afsökunar og fjarlægi myndefnið.
Í yfirlýsingu til suðurkóresku fréttastofunnar Yonhap staðfesti Activision að raunverulegt fréttamyndskeið hefði verið notað í upphafsatriði leiksins til að styðja við skáldaðan söguþráð hans. Ætlunin hafi ekki verið að gera lítið úr þessum mikla harmleik.