Franska lögreglan hefur stóraukið viðbúnað á suðvesturströnd landsins eftir að upplýsingar bárust um að allt að 15 tonn af kókaíni kunni að vera á reki í Atlantshafi. Á sama tíma flykkist fólk á strendurnar í von um að finna hluta sendingarinnar.
Franski vefmiðillinn RTL greinir frá þessu.
Þyrlur, mótorhjólalögreglumenn og lögreglumenn á hestum hafa verið kallaðir til að fylgjast með strandlengjunni í Gironde- og Landes-héraði við Atlantshafið.
Aðgerðirnar hófust á þriðjudag eftir að lögreglu bárust upplýsingar um að allt að 15 tonnum af kókaíni hefði hugsanlega verið varpað í sjóinn undan ströndum Frakklands.
Engin fíkniefni hafa enn fundist, en það hefur ekki komið í veg fyrir að forvitnir einstaklingar leggi leið sína á strendurnar.
Í bænum Lacanau hafa hópar fólks sést ganga fram og til baka um fjöruna í leit að fíkniefnapökkum. Sumir hafa jafnvel mætt í stígvélum, vel undirbúnir fyrir leitina.
Lögregla hefur þegar kannað skilríki um 150 einstaklinga á strandlengjunni í Landes og hefur aukið eftirlit til að koma í veg fyrir að möguleg fíkniefnasending lendi í höndum almennings.
Philippe de Gonneville, bæjarstjóri Lège-Cap-Ferret, segir að enn hafi ekki verið talin ástæða til að loka ströndum á svæðinu.
Hann rifjar þó upp sambærilegt atvik fyrir fjórum árum þegar rúmlega 60 kíló af kókaíni ráku á land. Þá hafi hann ákveðið að loka ströndunum til að auðvelda lögreglu að hafa hendur í hári þeirra sem reyndu að komast yfir fíkniefnin.
Að sögn RTL beinist rannsókn lögreglu meðal annars að þeirri kenningu að eitthvað hafi farið úrskeiðis þegar smyglarar reyndu að flytja fíkniefni úr stóru skipi yfir í smærri báta á hafi úti.
Enn hefur ekkert fundist sem staðfestir að 15 tonna kókaínsendingin sé í raun til staðar og því ekki útilokað að fregnirnar séu aðeins orðrómur sem enginn fótur er fyrir.