Heimsfaraldur kórónuveirunnar setti daglegt líf algjörlega úr skorðum. Gripið var til umfangsmikilla lokanna á samfélagsstarfsemi, takmarkanir voru settar á eitt og annað og fólk óttaðist stöðugt að smitast af veirunni skæðu.
En heimsfaraldurinn er afstaðinn en það þýðir ekki að annar geti ekki skollið á okkur þegar við reiknum allra síst með.
Norski prófessorinn Gunnveig Grødeland, sem vinnur hjá Oslóarháskóla, segir að nýr heimsfaraldur geti skollið á hvenær sem er og að hann geti orðið verri en sá síðasti.
Fuglaflensa vekur sérstakar áhyggjur því hún getur hugsanlega borist í fólk og aðrar dýrategundir en fugla.
Erlend Svardal Bøe, talsmaður þingflokks Høyre í heilbrigðismálum, sagði í samtali við Dagbladet að það verði að taka þessa hættu alvarlega.
„Ríkisstjórnin gerir ekki nóg. Hún er sem lömuð,“ sagði hann og bætti við að hann telji að sjúkrahúsin búi ekki yfir nægilega mörgum gjörgæslurúmum og að bæði sveitarfélög og sjúkrahús skorti úrræði til að æfa sig fyrir hugsanlegan heimsfaraldur.
Hann gagnrýndi einnig að Noregur taki ekki þátt í samvinnu ESB um viðbúnað í heilbrigðiskerfinu.