Pressan

Ofuróvinsæll Trump gæti verið að færa Demókrötum sögulegt tækifæri upp í hendurnar

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Árum saman hafa Repúblikanar verið með ákveðna taktík til að tryggja stöðu sína og halda völdum í Bandaríkjunum. En nú gæti þetta snúist algjörlega við, aðallega vegna þess hversu óvinsæll Donald Trump er meðal kjósenda.

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu á þriðjudaginn og þá gætu Demókratar komist í lykilstöðu. Þykja þeir hafa góða möguleika nú til að komast í lykilstöðu. Mörgum hefur eflaust yfirsést þessi möguleiki en nú er þetta mikið rætt innan Demókrataflokksins.

„Þetta er einstakt tækifæri, sem býðst aðeins einu sinni hjá hverri kynslóð, til að breyta valdahlutföllunum,“ sagði Heather Williams, formaður kosningastjórnar Demókrataflokksins, í samtali við NBC News.

Barack Obama ræddi um þetta einstaka tækifæri í tölvupósti sem hann sendi flokkssystkinum sínum nýlega og lagði áherslu á mikilvægi þess að nýta þetta tækifæri.

Þrátt fyrir að mesta athyglin beinist nú að baráttunni um völdin í Washington D.C. þá er annar slagur sem getur orðið alveg jafn mikilvægur. Eða öllu heldur, mörg þúsund slagir.

Völdin í ríkjunum

Það verður ekki bara kosið um þingsætin í fulltrúadeildinni og öldungadeildinni. Í ríkjunum verða ríkisstjórar kjörnir og þingmenn á ríkisþingin.

Í tölvupósti sínum benti Obama á að þingmenn á ríkisþingunum hafi oft meiri áhrif á daglegt líf Bandaríkjamanna en þingmennirnir í Washington D.C.

„Í raun hafa ríkisþingin aldrei verið mikilvægari til að tryggja framtíð okkar, þegar við sjáum hvernig lýðræðishefðir eru veiktar þessa dagana,“ skrifaði Obama meðal annars.

Það er ekki síður mikilvægt að í Bandaríkjunum eru það ríkin sjálf sem ákveða hvernig kosningum er hagað og þau geta breytt því hvernig kjördæmin eru sett upp.

Þetta verður sífellt mikilvægara.

Donald Trumphefur ítrekað sáð efasemdarfræjum um trúverðugleika kosninga í Bandaríkjunum og hefur reynt að auka stjórn alríkisins á kosningaframkvæmdinni.

Jótlandspósturinn hefur eftir Derek Beach, prófessor í  stjórnmálafræði við Árósaháskóla, að af þessum sökum sé það mikilvægt fyrir Demókrata að fara með völdin í ríkjunum því þannig geti þeir myndað varnarmúr og tryggt að kosningar fari fram á hlutlausan hátt og komið í veg fyrir kosningasvindl.

Eftir að Trump hvatti flokkssystkini sín á síðasta ári til að breyta kjördæmaskipaninni til að auka möguleika Repúblikana á að sigra í einstökum kjördæmum hefur kjördæmum verið breytt í níu ríkjum. Þetta er mjög óvenjulegt því venjulega er kjördæmunum breytt á tíu ára fresti og ekki var tími kominn á slíkar breytingar. Svona umfangsmiklar breytingar á kjördæmum hafa ekki verið gerðar síðan á nítjándu öld.

Kosningarnar ráða hverjir fara með völdin í ríkjunum og geta þar með breytt kjördæmunum fyrir næstu kosningar. Repúblikanar opnuðu þá flóðgátt og því ekki ólíklegt að Demókratar muni reyna að færa stöðuna aftur í fyrra horf að sögn Beach.