Pressan

Heilt lögreglulið lætur af störfum – Bæjarstjórinn setti staðsetningarbúnað á bíl lögreglustjórans

Mynd

Allir lögreglumennirnir í bænum Milner í Georgíu í Bandaríkjunum létu af störfum á miðvikudaginn.  Þeir sögðu upp í kjölfar deilna milli lögreglustjórans, Lamar Bunn, og bæjarstjórans, Craig Timmons.

Bunn hefur sakað Timmons um að hafa njósnað um sig og að hafa sett staðsetningarbúnað á bifreið sína. Timmons er einnig sagður hafa sakað Bunn um að eiga í ástarsambandi við framkvæmdastjóra bæjarins, Tausha Grose.

People skýrir frá þessu og segir að Grose hafi nýlega tilkynnt að Bunn og hinir fimm lögreglumenn bæjarins, sem eru í fullu starfi, hafi sagt upp og það sama hafi flestir þeirra, sem eru í hlutastarfi, einnig gert.

Grose tilkynnti einnig að hún hefði sagt upp störfum.

Borgarafundur var haldinn í síðustu viku og þar sagði Bunn frá ásökununum um ástarsambandið við Grose og sagði þetta vera helbera lygi og benti á eiginkonu sína sem sat í salnum. Hann sakaði einnig Timmons um að hafa sett staðsetningarbúnað á bíl sinn og að hafa notað eftirlitsmyndavélar í ráðhúsinu til að njósna um sig.