Pressan

Þetta getur typpið sagt þér um heilsufar líkamans

Mynd

Þegar þú hugsar um typpið á þér, þá tengirðu það kannski frekar við unað og ánægju en heilsufarsmæli. En það sem gerist í nærbuxunum, getur veitt ákveðnar vísbendingar um hvernig ástand líkamans er.

Breytingar á reisn, næmi eða jafnvel hvernig forhúðin hegðar sér getur átt sér margar skýringar, allt frá minniháttar pirringi yfir í heilsufarsástand sem þarf að skoða betur.

Sumum einkennum þarf ekki að hafa áhyggjur af en að vita hvað er eðlilegt hjá þér og að geta áttað sig á þegar eitthvað er óeðlilegt getur hjálpað þér að vita hvenær er rétt að tala við lækni.

Babak Ashrafi, læknir, ræddi við Metro um þetta og skýrði frá algengustu breytingunum sem geta orðið á typpinu og hvað þær geta verið merki um.

Risvandamál

Ashrafi sagði að margir karlar telji risvandamál vera sjúkdóm í sjálfu sér en oft sé þetta einkenni frekar en undirliggjandi ástæða.

„Ris limsins treystir á að heilbrigðar æðar, taugar, hormónar og andleg vellíðan vinni saman. Ef eitthvað truflar eitthvað af þessum kerfum, þá getur typpið stundum verið fyrsti staðurinn þar sem þetta sést,“ sagði hann.

Hann sagði að ef karlar glíma við linan lim, þá geti það bent til ákveðinna hluta sem tengjast ekki bara kynlífi.

Hár blóðþrýstingur

Æðarnar, sem flytja blóð til typpisins, eru miklu þrengri en þær sem flytja blóð til hjartans. Vegna þessa getur standpína (eða skortur á henni) verið snemmbúið aðvörunarmerki um að þær séu að þrengjast eða glata teygjanleika sínum vegna of hás blóðþrýstings.

Ashrafi sagði að sumir karlar taki kannski eftir breytingu á standpínunni áður en þeir finna fyrir öðrum einkennum. Þess vegna þurfi að hafa í huga að slíkar breytingar tengjast ekki endilega hækkandi aldri einum saman.

Sykursýki

Sykursýki getur haft áhrif á æðarnar og taugar sem tengjast risi getnaðarlimsins. Ef þú finnur fyrir auknum þorsta, þarft að pissa mjög oft, sjónin verður þokukennd eða óútskýrð þreyta sækir á, þá ráðleggur Ashrafi þér að ræða við lækni.

Hátt blóðfitugildi

Þetta þarf ekki endilega að fylgjast að en Ashrafi segir að sumir karlar geti lent í að breytingar á risi getnaðarlimsins séu snemmbúið merki um að það þurfi að mæla blóðfituna.

Lítið testósterón

Lítið testósteróngildi getur haft áhrif á kynhvötina og virkni limsins. Ashrafi segir að það sé mikilvægt að horfa á heildarmyndina frekar ein eitt einkenni eitt og sér.

Ef stöðug þreyta, slæmt skap, minni vöðvastyrkur eða færri fyrirvaralausar standpínur fylgja minni kynhvöt, þá gætu hormónar komið við sögu.

Svefnvandamál

Þú tengir kannski ekki svefn við kynlífið en að fá nóg af góðum svefni skiptir máli hvað varðar hormónaframleiðslu, heilbrigði hjartans og æðakerfisins og þess að geta stundað kynlíf.

Ashrafi segir að ef karlar taki eftir breytingum á standpínunni og um leið fari þeir að hrjóta hátt, séu mjög þreyttir að degi til eða sofi illa, þá sé þess virði að rannsaka hvort undirliggjandi svefnvandamál komi við sögu.

Vörtur, bólur, útbrot, sár eða hnúðar

Ef þú finnur eitthvað nýtt á typpinu, til dæmis hnúð eða útbrot, þá getur hugurinn svo sannarlega farið á fleygiferð.

Það er ekki þannig að sérhver hnúður, útbrot eða bóla á typpinu sé alvarleg en sumt getur tengst kynsjúkdómum eins og HPV eða herpes sem og öðrum sýkingum og húðvandamálum.

Ashrafi ráðleggur karlmönnum að veita breytingum á typpinu athygli og að reyna ekki sjálfir að sjúkdómsgreina þær. Það sé rétt að leita til læknis ef þessar breytingar eru sársaukafullar, viðvarandi, breiðist út eða önnur einkenni fylgja þeim.

Beygt eða bogið typpi

Sum typpi eru náttúrulega bogin og ef þitt hefur alltaf verið þannig og hefur ekki valdið vandamálum, þá er venjulega engin ástæða til að hafa áhyggjur.

Ashrafi segir að karlar þurfi þó að hafa í huga að ef typpið byrjar skyndilega að beygjast eða beygjan versni, sérstaklega ef sársauki, hnúður, hart svæði á typpinu eða erfiðleikar við að stunda kynlíf fylgi þessu, þá geti það verið merki um Peyroni‘s sjúkdóminn en honum fylgir að örvefur myndast í typpinu.

Erfiðleikar við að draga forhúðina aftur

Sumir hafa hugsanlega glímt við erfiðleika við að draga forhúðina aftur árum saman. Hjá öðrum getur þetta byrjað síðar á lífsleiðinni.

Ashrafi sagði að hvort sem er, þá sé þetta merki um phimosis, einkenni þar sem forhúðin er of þröng til að hægt sé að draga hana aftur á þægilegan hátt.