Pressan

Þetta eru algengustu skilnaðarorsakirnar eftir langt hjónaband

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Við vitum aldrei nákvæmlega hvað gerist á bak við luktar dyr á heimilum fólks en eflaust gerist eitt og annað þar sem veldur því að það slitnar upp úr hjónaböndum.

En hvað getur það verið sem gerir að verkum að sumum hjónaböndum lýkur jafnvel eftir áratugi en öðrum eftir mjög skamman tíma?

Metro fjallaði nýlega um þetta og leitaði upplýsinga hjá hjónabandsráðgjöfum og skilnaðarlögfræðingum sem hafa séð sitt af hverju í starfi sínu og nefndu þeir meðal annars eftirfarandi atriði.

Hjónabandið rennur sitt skeið á enda

Stundum enda hjónabönd vegna mikilla deilna en stundum einfaldlega vegna þess að annar eða báðir aðilar elska hinn ekki lengur, neistinn er horfinn.

Sérfræðingarnir sögðu að stundum sé engin þriðji aðili tengdur skilnaðinum, það sé bara eins og hjónin hafi fengið nóg af hvort öðru. Stundum gerist þetta þegar börnin eru flutt að heiman og foreldrarnir sitji eftir heima og hugsi: „hvað eigum við sameiginlegt?“ eða „hvað tölum við um?“.

Sambandið vanrækt

Einnig var nefnt til sögunnar að stundum missi hjón sjónar á hvort öðru þegar stressið í lífinu taki völdin, til dæmis börnin, atvinnumissir, veikindi, andlát foreldris svo eitthvað sé nefnt.

Oft sé það þannig að fólk leiti sér aðstoðar þegar það þarf að takast á við fyrstu hindranirnar varðandi starfsframa og börn. Það taki augun af hjónabandinu og það lendi aftar í forgangsröðinni, fyrir aftan hundinn og líkamsræktina.

Framhjáhald

Það kemur örugglega engum á óvart að framhjáhald sé oft það sem veldur hjónaskilnaði. Sérfræðingarnir sögðu það reynslu sína að það sé líklegra að fólk, sem hefur ekki verið lengi í hjónabandi, skilji ef framhjáhald á sér stað.

Fólk, sem hafi verið gift lengi, fyrirgefi stundum framhjáhald vegna barnanna og flókinna sameiginlegra fjármála.

Fjármál

Fjármál eru oft eitt helsta ágreiningsmálið í hjónaböndum og ef ekki tekst að leysa úr þessum deilum, þá getur það bundið enda á hjónabandið.

Sérfræðingarnir sögðu að þeir sjái oft að fólk telji að þótt það verði erfitt fjárhagslega í fyrstu að vera einn, þá vilji þeir frekar vera það til langs tíma en að vera í hjónabandinu.

Sérfræðingarnir nefndu einnig fíkn, slæma hegðun, skort á nánd og að fólk hlusti ekki á hvort annað.