Pressan

Skrímslið lék lausum hala í þrjá áratugi – Spor dauðans

Mynd
Baiyin.

Raðmorðingi leyndist á dimmum götum borgarinnar. Í þrjá áratugi nauðgaði hann og limlesti fórnarlömb sín. Tæp þrjátíu ár liðu þar til lögreglan hafði hendur í hári hans og brá mörgum við að „skrímslið“ var alls ekki eins og reiknað var með.

Það var stjörnubjart þegar 23 ára kona flýtti sér eftir götum Baiyin, borg með tæplega 300.000 íbúa í Gansu-héraðinu í Kína. Hún var á leið heim eftir vinnu í virkjun borgarinnar. Það var ekki myrkrið sem fékk hana til að flýta sér, það var það sem leyndist í myrkrinu.

Hún jók hraðann. Hún þurfti bara að komast niður eftir síðustu götunni áður en hún kæmi að stigaganginum sínum. Hún var með lykilinn í höndinni þegar hönd greip um hana. Hún sneri sér við og sá hann standa þarna með starandi augu.

Hann var dökkklæddur og hún sá hníf. Hann ýtti henni upp að útidyrunum en hún barðist á móti.

Í örvæntingu sinni fann hún orku til að ýta honum frá sér í síðasta sinn. Það dugði til að hún komst inn og gat lokað dyrunum áður en hann kastaði sér á þær af öllum þunga.

Hún fór að glugganum til að kíkja út í myrkrið. Kannski var hann horfinn. En þarna stóð hann og virtist hlæja að henni. Svo hvarf hann.

Unga konan hafði naumlega sloppið úr klóm alræmds raðmorðingja borgarinnar. Eina fórnarlamb hans sem slapp lifandi frá honum.

Spor dauðans

Þegar lögreglan kom til konunnar aðeins seinna um kvöldið var hlæjandi skrímslið á bak og burt. Í öllum öðrum tilfellum var hringt í lögregluna þegar lík hafði fundist. Þannig hafði þetta verið síðan 1988 þegar hann myrti í fyrsta sinn. Fórnarlambið var 23 ára kona.

Morðinginn hafði komist inn í herbergi hennar þar sem hann kyrkti hana og skar á háls. Hún fannst með brjóstin ber og buxurnar höfðu verið dregnar niður um hana. Hún var með 26 djúp stungusár.

Sex árum síðar var 19 ára kona myrt og 1997 var 21 árs kona myrt. Hún lá nakin á bakinu í rúminu sínu. Hún hafði verið bundin á höndum og fótum. Sópi hafði verið stungið niður í háls hennar.

Mynd
Baiyin.

Hann myrti fjórar manneskjur 1998, þar á meðal sjö ára stúlku sem beið eftir að foreldrar hennar kæmu heim. Hann kyrkti hana með belti og svívirti líkið síðan kynferðislega og faldi svo í skáp.

Hann skar höfuðið af konu einni og brjóstin, hendur og kynfærin af annarri.

Illmennskan var mikil og fólk var hrætt.

Fingraför og sæði höfðu fundist á morðvettvöngunum. En lögreglan bjó ekki yfir tækni til að rekja DNA-slóðir. Hún gat bara greint í hvaða blóðflokki morðinginn var. Þess vegna var nærtækt að telja að straumhvörf gætu orðið í rannsókninni 2001 þegar ungu konunni tókst að sleppa frá morðingjanum.

Til að skilja ástæðuna fyrir að lögreglunni gekk svo illa að handsama morðingjann verðum við að fara aftur til sjöunda áratugarins þegar Baiyin var miðstöð mikils námureksturs.

Rúmlega ein milljón manna flutti til borgarinnar og íbúarnir höfðu það mjög gott. En á níunda áratugnum klikkaði allt þegar náman tæmdist.

Fólk missti vinnuna, launin lækkuðu og velferðarkerfið varð fyrir miklu höggi.

Höfðu bara fingraför

Lögreglan bjó við þröng kjör og gat ekki fengið nauðsynlegar bjargir til að hægt væri að leysa morðin og önnur mál. Eina tæknin sem hún hafði aðgang að voru fingraför.

Lögreglumenn sátu með stækkunargler og skoðuðu hvert einasta fingrafar til finna líkindi. Nánast ómögulegt verkefni og besti möguleiki lögreglunnar var því teikning af raðmorðingjanum.

Teikningin sýndi mann með þykkt hár og í blárri skyrtu. Kinnar hans eru innfallnar og haka svolítið oddhvöss. Hann líktist venjulegum verkamanna í Baiyin.

Mynd
Gao lék lausum hala í tæpa þrjá áratugi.

Lögreglan taldi að hér væri um einmana mann að ræða, mann sem einangraði sig. Pervert og sadískur einfari.

Lögreglan rannsakaði 230.000 fingraför en fann enga samsvörun.

Tveimur mánuðum eftir hina misheppnuðu árás á 23 ára konuna, lét raðmorðinginn aftur til skara skríða. Þann 22. maí 2001 réðst hann á 27 ára hjúkrunarfræðing sem var á heimleið. Hann komst inn í íbúð hennar þar sem hann batt hana og stakk 16 sinnum í hálsinn með hnífi. Daginn eftir fannst lík 21 árs konu.

DNA varð honum að falli

Hún var tíunda fórnarlambið á 13 ára tímabili. Nú gerði morðinginn hlé á illvirkjum sínum.

Það voru augljós líkindi með morðaðferðunum, kynferðisofbeldinu og limlestingunum. En það voru engin bein tengsl á milli fórnarlambanna nema hvað þau voru öll yngri en þrjátíu ára og kvenkyns.

Í byrjun febrúar 2002 var enn ein konan myrt. 2004 hét lögreglan verðlaunum, sem svara til 4 milljóna króna, fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku morðingjans.

Lögreglan styrkti sig næstu árin, bæði hvað varðar mannafla og útbúnað. 2010 var rannsóknarstofa, þar sem var unnið við greiningar á DNA, opnuð í Baiyin.

Nú voru átta ár liðin síðan morðinginn lét að sér kveða. Það virtist sem morðinginn væri hættur.

Í tengslum við rútínutékk í fingraförum 2016 fann lögreglan för sem pössuðu næstum því við þau sem höfðu fundist á morðvettvöngum. Maður hafði verið handtekinn vegna smámáls. Lífsýni úr honum var tekið til DNA-rannsóknar og reyndist passa við DNA úr frægu máli.

Hinn handtekni er ættingi hins kínverska „Jack the ripper“ en það var raðmorðinginn kallaður.  Nú gat lögreglan fækkað í hópi grunaðra og að lokum fékk hún fullkomna DVA-svörun.

Í lok ágúst 2016 var sérsveit send til að handtaka skrímslið sem hafði herjað á Baiyin í tæp 30 ár.

En skrímslið, sem sérsveitin handtók, líktist alls ekki því skrímsli sem lögreglumenn höfðu átt von á að hitta. Hinn handtekni hét Gao Chengyong og var 52 ára, hálf sköllóttur, of þungur og óþekktur. Hann var kvæntur og átti tvö uppkomin börn. Hann rak sjoppu með eiginkonu sinni.

Fólk, sem þekkti Gao, grunaði ekki að hann lifði tvöföldu lífi. Flestir töldu hann raunar vera svolítið einfaldan og saklausa sál. En undir saklausu yfirborðinu leyndist sadískur raðmorðingi. Ekki er útilokað að einmitt þetta sakleysislega yfirborð hafi gert honum kleift að stunda þessa óhugnanlegu iðju sína.

Þegar hann var yfirheyrður játaði hann 11 morð og gat skýrt frá þeim öllum í smáatriðum. En skrímslið leyndist undir yfirborðinu. Hann hafði enga samúð með fórnarlömbum sínum, ekki einu sinni þegar hann lýsti morðinu á litlu stúlkunni.

Hann sagði að fyrsta morðið hafi átt sér stað fyrir tilviljun þegar hann var í fjárhagsvanda. Hann braust inn í hús en þar kom 23 ára kona að honum. Hann myrti hana og sagðist ekki hafa fundið til sektarkenndar eða hryllings, þvert á móti naut hann þess að myrða hana. Þarna varð raðmorðingi til.

Hann sagðist hafa klæðst dökkum fötum þegar hann fann fyrir þörf til að myrða. Honum var alveg sama hvernig fórnarlömbin litu út en það var mikilvægt að þetta væru ungar konur í viðkvæmri stöðu.

Þegar Gao var spurður af hverju hann hefði hætt að myrða, var svarið einfalt. Hann yppti öxlum og sagðist vera orðinn of gamall og væri ekki lengur nógu sterkur til að yfirbuga fórnarlömbin.

Dómurinn

Réttarhöldin yfir Gao hófust 2017 og voru margir ættingjar hinna myrtu viðstaddir. Eftir tæplega 30 ár, gátu þeir loksins séð andlit morðingjans.

Mynd
Gao fyrir dómi.

Gao stóð upp í dómsalnum og baðst fyrirgefningar á ódæðisverkunum. Hann bauðst til að ánafna líffærum sínum til ættingja fórnarlambanna og átti það að vera einhverskonar bón um að vera fyrirgefið.

Hann var dæmdur til dauða og var tekinn af lífi 3. janúar 2019.