Breski varnarmálaráðherrann Wes Streeting segir að andstæðingar Bretlands geti verið tilbúnir til að ráðast á Bretland áður en áratugurinn er á enda.
Hann létt þessi aðvörunarorð falla í fram haldi af hvatningu Andy Burnham, forsætisráðherra, til Breta um að koma sér upp birgðum af niðursoðnum mat og vatni í flöskum til að geta tekist á við neyðarástand.
Í grein í The Telegraph skrifaði Streeting: „Vilji andstæðinga okkar til að skaða okkur er ekki nýr af nálinni. Það sem hefur breyst er geta þeirra. Styrkur hers þeirra og stríðsefnahagur getur gert þeim kleift að ráðast á okkur fyrir árið 2030. Við höfum því aðeins meira en 1.000 daga til að ljúka verkefni okkar: að vera reiðubúin, ásamt bandamönnum okkar, til að berjast og sigra.“
Hann sagði að Bretar verði að undirbúa sig undir hið versta og vísaði til „ríkisstuddrar hryðjuverkastarfsemi“ á vegum Rússa.
Breskur almenningur hefur verið hvattur til að koma sér upp neyðarbirgðum. Þar á meðal að eiga níu lítra af vatni fyrir hvern einstakling og þriggja daga matarbirgðir. Þess utan er fólk hvatt til að eiga teppi, reiðufé, skyndihjálparbúnað og FM-útvarpstæki sem eru trekt upp.