Flestir vita að lítill nætursvefn eða léleg svefngæði valda því að fólk er þreytt næsta dag og jafnvel skapvont. En það vita kannski ekki allir að slæmur nætursvefn, nótt eftir nótt, tengist nokkrum af alvarlegustu sjúkdómunum sem við þekkjum.
Þetta kemur fram í umfjöllun bandarísku National Heart, Lung, and Blood (NHLBI) (hjarta-, lungna og blóð stofnunin) sem segir í nýlegri umfjöllun á heimasíðu sinni að léleg svefngæði og of lítill svefn séu áhættuþættir beintengdir hjartasjúkdómum, sykursýki 2, þunglyndi, krabbameini og Alzheimers. Þetta á sérstaklega við um konur.
Vísar stofnunin sérstaklega í rannsókn frá 2020, sem var birt í vísindaritinu Journal of the American College of Cardiology, sem stofnunin fjármagnaði.
Í rannsókninni var fylgst með tæplega 2.000 fullorðnum á aldrinum 45 til 84 í fimm ár. Niðurstaðan var að fólkið, sem glímdi mest við léleg svefngæði var tvöfalt líklegra til að fá hjarta- og æðasjúkdóma á borð við blóðtappa, heilablóðfall eða jafnvel deyja en þeir sem voru með bestu svefngæðin.
Óreglulegur svefn hefur í för með sér að háttatíminn, fótaferðartíminn og svefnlengdin er breytileg frá einni nóttu til annarrar. Þetta þýðir ekki endilega að fólk sofi of lítið.
Michael Twery, forstjóri svefnmiðstöðvar NHLBI, segir að niðurstöður rannsóknarinnar tengi óreglulegan svefnrytma við margar sjúkdómsvaldandi breytingar í líkamanum í einu, meðal annars breytingar á blóðsykurmagi og bólgum.
Blóðsykurinn er einnig mikilvægur og segir NHLBI að svefnskortur hafi áhrif á viðbrögð líkamans við insúlíni en það er hormónið sem stýrir blóðsykrinum.
Ef fólk sefur of lítið verður blóðsykurmagnið hærra en venjulega og það getur til langs tíma aukið líkurnar á sykursýki 2.
Hvað varðar Alzheimers, þá losar heilinn sig við úrgangsefni þegar fólk sefur djúpum svefni, draumlausum, þar á meðal prótínið beta-amyloid sem safnast fyrir í heilanum hjá Alzheimarssjúklingum.
Sem sagt, þá hreinsar heilinn sig þegar maður sefur. Ef maður sefur of lítið eða svefngæðin eru léleg, þá nær heilinn ekki að hreinsa alla króka og kima og með árunum geta úrgangsefni safnast upp.
NHLBI ráðleggur fólki að fara í háttinn og á fætur á nokkurn veginn sama tíma á hverjum degi, einnig um helgar. Fullorðnir eiga að reyna að ná sjö til níu klukkustunda svefni.