Í apríl 1945 stöðvuðu bandarískir herlögreglumenn tvær konur á vegi nærri bænum Merkers í miðju Þýskalandi. Þetta voru franskar konur sem voru á gangi eftir veginum. Þær sögðust vera að leita að ljósmóður en þær sögðu hermönnunum svolítið annað sem leiddi til ótrúlegs fundar.
Bandarískir hermenn höfðu náð Merkers á sitt vald í byrjun apríl og höfðu bæjarbúar fengið skýr fyrirmæli um að halda sig frá vegum í og við bæinn. En tveimur dögum síðar stöðvuðu herlögreglumenn tvær konur á vegi nærri bænum. Önnur var barnshafandi og sögðust þær vera að leita að ljósmóður.
Lögreglumennirnir ákváðu að taka þær upp í bíl sinn og aka þeim annað. Þegar ekið var fram hjá Kaiseroda saltnámunni sögðu konurnar herlögreglumönnunum að Þjóðverjar hefðu falið gull og listmuni í námunni.
Bandarískir hermenn fóru því með lyftu niður í námuna, 640 metra. Þann 8. apríl sprengdu verkfræðingar hersins gat í gegnum múrvegg í námunni. Á bak við hann voru gullbirgðir nasista. Rúmlega 8.000 gullstangir. Mörg hundruð pokar með gullpeningum. Um 2,8 milljarðar þýskra marka í reiðufé. Um 400 málverk, mörg eftir helstu meistara sögunnar.
Þarna voru einnig ferðatöskur og kassar sem höfðu verið teknir af fórnarlömbum útrýmingarbúða nasista. Voru töskurnar og kassarnir fullir af skartgripum, silfurmunum og gulltönnum.
Nokkrum dögum síðar var gullið flutt með 32 flutningabílum í Reichsbank í Frankfurt. Önnur bílalest flutti listmunina.
Verðmæti munanna var metið á 520 milljónir dollara 1945.
Allt hófst þetta með leit tveggja franskra kvenna að ljósmóður.