Pressan

„Kærastinn er með undarlegar kynlífslanganir“ – „Þarf ég að hafa áhyggjur?“

Mynd
Notið smokkinn!

„Það er rosalega erfitt að skrifa um þetta en kærastinn minn vill gera undarlega hluti í kynlífinu. Hluti sem ég hef engan áhuga á en ég veit ekki hvernig ég á að takast á við þetta.“

Svona hefst lesandabréf til kynlífsráðgjafa Metro og síðan segir:

„Í fyrstu vildi hann að ég léki einhverskonar drottnunar persónu, ég skil þetta (þannig séð), að minnsta kosti veit ég að þetta er ansi algeng fantasía. Sumir karlar vilja láta drottna yfir sér og vera sagt hvað þeir eiga að gera, allt í lagi en ég dreg mörkin við að meiða. Ég er ekki viss um að ég hafi getað „skilað“ því sem hann vildi þegar við reyndum þetta en ég gerði mitt besta.

Málið er að síðan við byrjuðum að gera þetta, þá er eins og flóðgáttirnar að hlutum, sem mér líður ekki vel með, hafi opnast. Án þess að vera of grafísk eða ógeðsleg, þá líður mér illa yfir því nýjast sem kærastinn minn vill að ég geri, sem er að pissa á hann.

Um leið og hann nefndi að honum líki þetta, þá gat ég ekki falið viðbjóðstilfinninguna því í mínum augum þá er þetta eitthvað slæmt. Ef ég á að vera hreinskilin, þá varð ég frekar reið. Mér finnst þetta niðurlægjandi. Af hverju vill kærastinn minn, sem ég elska, að ég geri honum þetta? Hvað segir það um samband okkar ef hann heldur að ég vilji gera þetta við hann? Við elskum hvort annað, svo af hverju vill hann að ég geri eitthvað svona óeðlilegt? Þetta hefur orðið til þess að ég hef fjarlægst hann, ef ég á að vera hreinskilin. Ég finn að ég forðast nánd og kynlíf ef hann myndi biðja mig að gera þetta og ég vil það alls ekki.“

Ráðgjafi Metro svaraði konunni að sjálfsögðu og benti henni á að engum eigi að finnast það skylda að taka þátt í einhverri kynlífsathöfn sem þeim líkar ekki við. Ef aðvörunarbjöllurnar hringi, þá sé athöfnin líklega ekki eitthvað sem á við fyrir konuna.