Pressan

Fyrirsæta varanlega afmynduð eftir að hafa sprautað matarolíu í andlitið í stað silíkons

Mynd

Suðurkóreska fyrirsætan Hang Mioku sprautaði sjálf matarolíu í andlit sitt eftir að læknar neituðu að gera fleiri lýtaaðgerðir á henni. Þetta hafði skelfilegar afleiðingar því andlit hennar er afmyndað í dag.

Mioku var aðeins 28 ára þegar hún fór í lýtaaðgerð í fyrsta sinn. Hún varð fljótlega háð því að fara í lýtaaðgerðir til að varðveita fegurð sína og fá sléttari húð.

LadBible skýrir frá þessu og segir að Mioku hafi síðar flutt til Japan og hafi haldið áfram að fara í lýtaaðgerðir þar. Þetta hafi valdið því að andlit hennar bólgnaði og stækkaði.

Að lokum neituðu læknar að gera fleiri aðgerðir á henni og sálfræðingur taldi að hún glímdi við andleg veikindi sem gerðu að verkum að hún sæktist eftir að fara í lýtaaðgerðir sí og æ.

Mynd

Hún fékk aðstoð við að takast á við lýtaaðgerðafíkn sína en féll síðan og tók upp fyrri iðju nema hvað nú sprautaði hún sjálf silíkoni í andlit sitt. Þegar hún varð uppiskroppa með silíkon, byrjaði hún að sprauta matarolíu í andlit sitt.

Það kemur líklega engum á óvart að það á alls ekki að sprauta matarolíu í andlitið eða aðra líkamshluta því það er mjög hættulegt og getur valdið langtíma heilsufarsvandamálum.

Fíkn Mioku í matarolíu varð svo alvarleg að andlit hennar bólgnaði mikið upp. Þegar það fór að spyrjast út hvað hún hafði gert var fjallað um málið í heimildarmyndum í Suður-Kóreu. Margir létu þá fé af hendi rakna henni til stuðnings svo hún gæti gengist undir aðgerðir til að laga afmyndað andlitið.

Mynd
Hang Mioku er illa farin eftir allar þessar lýtaaðgerðir.

Hún hefur gengist undir fjölda aðgerða til að láta fjarlægja mörg hundruð grömm af matarolíu og hefur andlit hennar minnkað mjög en er enn afmyndað.