Pressan

Pest, bólusótt, miltisbrandur – Hvað geyma Rússar í tilraunaglösunum sínum?

Mynd
Þarna var eitthvað undarlegt á seyði. Mynd:Getty

Árið 1979 létust að minnsta kosti 68 manns þegar efnavopnaáætlun þáverandi Sovétríkjanna fór úr böndunum. Kommúnistastjórnin skýrði atburðinn með því að eitrað kjöt hefði orðið fólkinu að bana. Nýleg dauðsfall í Síberíu hefur vakið gamlar áhyggjur upp af dvala og ekki hefur það dregið úr þeim að rússnesk stjórnvöld virðast ekki hafa verið alveg hreinskilin varðandi dauðsfallið en það var starfskona í tilraunastofu með efnavopn sem lést.

Hvað varðar dauðsföllin 1979 þá játaði Boris Jeltsín, forseti, síðar að Sovétríkin og síðar Rússland hefðu verið með efnavopnaáætlun og lofaði að hún yrði lögð niður.

En sérfræðingar telja að það hafi ekki verið gert og að Rússar vinni enn að þróun efnavopna, nú síðast með byggingu nýrrar rannsóknaraðstöðu og dularfulls dauðsfalls í Irkutsk.

Það var í apríl 1979 sem hiti og þreyta fór að herja á fólk í sveitunum nærri því sem nú er Jekaterinburg í Ural-héraðinu, um 1.500 km austan við Moskvu. Einkennin líktust einna helst inflúensu. Síðan fylgdi kröftugur hósti og eftir aðeins nokkrar klukkustundir voru fyrstu fórnarlömbin dáin.

Læknar og sérfræðingar slógu því föstu að hér væri um miltisbrand að ræða og gripið var til rýmingar og bólusetninga í héraðinu. Samkvæmt opinberum tölum smituðust 95 og 68 létust. Talið er að tölurnar hafi verið mun hærri.

Yfirvöld þögguðu málið fljótt niður og sögðu að eitrað kjöt hefði átt sök á veikindunum og dauðsföllunum. Samkvæmt frásögn yfirvalda var miltisbrandur í kjötinu en talið er að miltisbrandur smitist ekki á milli fólks.

Kringumstæðurnar í kringum faraldurinn, sem átti sér stað í miðju kalda stríðinu, vöktu fljótt grun um að eitthvað annað en eitrað kjöt hefði komið við sögu. Stór rannsóknarstofa á vegum hersins var á svæðinu og þar störfuðu mörg þúsund manns. Rannsóknir, sem voru gerðar síðar, bentu til að smitið hefði borist þaðan.

Út frá sjónarhóli sovéskra leiðtoga var málið skelfilegt. 1975 skrifuðu Sovétríkin undir alþjóðlegan samning um bann við framleiðslu og geymslu efnavopna. En sem betur fer fyrir Sovétríkin, og önnur ríki sem hegðuðu sér, og hegða því samningurinn er enn í gildi, þá eru engin ákvæði í samningnum um eftirlit.

Boris Jeltsin játaði síðar að Sovétríkin væru með efnavopnaáætlun og skrifaði undir tilskipun um að henni skyldi hætt.

Játning hans kom ekki mjög á óvart því önnur óhöpp höfðu orðið sem bentu til þess að Sovétríkin væru með efnavopnaáætlun. Bólusótt gaus upp í asíska hluta Sovétríkjanna 1971 þegar veiran slapp út frá annarri rannsóknarstofu.

En þrátt fyrir loforð Jeltsín í upphafi tíunda áratugarins, á sama tíma og Rússland fékk mikinn efnahagslegan stuðning frá Vesturlöndum, þá bendir allt til að efnavopnaáætluninni hafi verið haldið áfram, að minnsta kosti að hluta.