Pressan

Datt ofan í gröf föður síns og lést

Mynd
Mynd úr safni.

Karlmaður lést nýlega þegar hann datt ofan í gröf föður síns. Maðurinn var viðstaddur útför vinar síns í sama kirkjugarði og faðir hans hvílir í. Hann settist á legsteininn á leiði föður síns til að hvíla sig en jörðin gaf sig undan honum og hann datt ofan í gröf föður síns.

Metro skýrir frá þessu og segir að þetta hafi gerst í Sao Jose kirkjugarðinum í Linhares í brasilíska ríkinu Espirito Santo sem er um 400 km norðan við Rio de Janeira.

Metro segir að maðurinn hafi verið viðstaddur útför vinar síns sem lést í umferðarslysi. Þegar hann ætlaði að hvíla sig með því að setjast á legstein föður síns, gaf jörðin sig undan þunganum og maðurinn datt ofan í gröf föður síns.

Nærstaddir heyrðu mikinn hávaða þegar þetta gerðist og ruku til og reyndu að koma til aðstoðar og hringdu í neyðarlínuna. Því miður reyndist ekki unnt að bjarga lífi mannsins og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi.

Hinn látni var um fertugt.

Lögreglan rannsakar málið.