Ef Danmörk verður fyrir umfangsmikilli tölvuárás eða ef raforkukerfið lamast eiga neyðarverslanir að vera opnar um allt land. Þetta á auðvitað einnig við ef neyðarástand skapast af öðrum orsökum.
Í neyðarverslununum á að vera hægt að kaupa allra nauðsynlegustu nauðsynjavörurnar. Þær munu meðal annars selja haframjöl, prótínstangir, niðursoðnar kjötbollur í karríi og hrískex með hafsalti.
Einnig munu þær selja rafhlöður, blautþurrkur, klósettpappír og bleiur. Neyðarlagerinn telur 50 mismunandi vörur.
Smásölurisinn Salling Group, sem rekur verslanir Bilka, Føtex og Netto vinnur nú að því að koma 51 neyðarverslun á laggirnar. Eiga þær að vera tilbúnar á næsta ári. Þær eiga að geta verið opnar í minnst tvo daga þótt rafmagnslaust sé og sambandslaust við umheiminn.
Í samvinnu við greiðsluhirðingarfyrirtækið Nets verður séð til þess að fólk getur greitt fyrir vörur sínar í neyðarverslununum með greiðslukortum þótt ekkert Internetsamband sé til staðar.
TV2 skýrir frá þessu og segir að verslanirnar verði staðsettar um alla Danmörku og tryggi að allt að 80% landsmanna þurfi ekki að fara lengra en 50 kílómetra til að komast í næstu verslun.