Ken McCallum, yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5 segir að Bretland sé komið inn í nýja tíma hvað varðar öryggispólitík. Mesta ógnin stafar af Rússlandi en Íran lætur sífellt meira að sér kveða í fjölþáttastríði. MI5 varar einnig við hættunni af hryðjuverkum íslamista og öfgahægrimanna. Og gervigreindin er einnig á lista leyniþjónustunnar yfir þær hættur sem steðja að.
Ríkisleyndarmál, njósnir og þjóðaröryggi hafa einkennt starfsferil McCallum síðustu þrjátíu árin.
Það sem situr efst í huga hans eftir þennan langa feril eru hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin í september 2001. „Þetta var áfall, sem breytti heiminum, af jarðskjálftastyrk,“ sagði hann.
Nýlega ræddi hann við blaðamenn á árlegum fjölmiðladegi MI5 en á þeim degi varpar leyniþjónustan ljósi á þær ógnir sem hún tekst á við. Miðað við orð McCallum þá sitja hann og starfsfólk hans ekki auðum höndum.
Ógnirnar koma aðallega frá Rússlandi, Íran og Kína. En öfgasinnaðir íslamistar og hægrimenn eru einnig ógn við öryggi Bretlands.
McCallum sagði að gervigreind sé einnig alvarleg ógn og geti endurskilgreint aðferðir hryðjuverkamanna og tölvuþrjóta af því að það er hægt setja gervigreind í dróna og nota hana við þróun efnavopna.
McCallum fór ekki leynt með að Rússland sé í efsta sæti lista MI5 yfir verstu óvinina. Hann sagði að vegna fjölda ógna frá erlendum ríkjum noti MI5 fleiri úrræði gegn opinberum aðilum en í kalda stríðinu.
Íran hefur einnig verið að herða fjölþáttastríð sitt gegn Bretlandi og á síðasta ári voru 50 handtökur í landinu vegna aðgerða, tengdum Íran, á borð við íkveikjur og skemmdarverk.