Pressan

Algengar orsakir risvandamála og einfaldar lausnir á þeim

Mynd

Viljinn er til staðar og það er löngunin einnig en jafnaldrinn vill bara ekki rísa. Kannast þú við þetta?

Að fá standpínu er flókið ferli þar sem margir þættir koma við sögu. Að sögn sérfræðinga eru eftirtaldar orsakir þær algengustu þegar kemur að risvandamálum.

Svefnskortur – Ef maður sefur alltaf of lítið þá er erfitt að láta kynlífið virka sagði Nathan Starke, þvagfæralæknir, í samtali við Men‘s Health. Svo nægur svefn skiptir máli varðandi kynlífið.

Slæmt mataræði – Það getur komið sér vel fyrir getnaðarliminn ef mataræðið er hollt. Starke sagðist mæla með mataræði sem innihaldi lítið af kolvetnum og að menn forðist mettaða fitu og borði þess í stað góðar prótínuppsprettur, flókin kolvetni, mikið af grænmeti og ávöxtun og forðist ofurunnar matvörur.

Rannsókn frá 2020, sem var birt í JAMA Network Open, leiddi í ljós að karlar, sem fylgdu svokölluðu Miðjarðarhafsmataræði eða „Alternative Healthy Eating Index 2010 kúrnum (þar eru grænmeti, ávextir, hnetur, belgjurtir og fiskur í hávegum haft og rautt kjöt og unnar kjötvörur eru á bannlista) voru síður líklegir til að glíma við risvandamál.

Kyrrseta – „Að fá ekki næga hreyfingu yfir daginn er slæmt fyrir heilsuna almennt sér en það getur líka haft áhrif á reisnina. Kyrrsetu lífsstíll getur aukið hættuna á of háum blóðþrýstingi, hárri blóðfitu og sykursýki sem geta líka valdið risvandamálum,“ sagði Daniel Brison, þvagfæralæknir, í samtali við Men‘s Health.

Ástæðan fyrir þessu er að kyrrseta dregur úr blóðflæði en til að limurinn komist í almennilega reisn þarf gott blóðflæði.

Þyngdin – Starke sagði að fita geti valdið bólgum og stressað líkamann. Hún geti einnig valdið tauga- og blóðþrýstingsvandamálum, allir þessir þættir geti eyðilagt getuna til að fá standpínu. 

Fita getur einnig haft áhrif á hormónaframleiðsluna og dregið úr testósterónmagninu og þar með aukið hættuna á risvandamálum.

Áfengisneysla – Áfengi endar í miðtaugakerfinu. Það dregur úr blóðflæðinu til limsins sem dregur úr getu hans til að ná reisn.

„Ef drykkurinn getur hjálpað þér að slaka á, en hann getur haft öfug áhrif ef maður drekkur of mikið,“ sagði Jamin Bahmbhatt, þvagfæralæknir, í samtali við Men‘s Health.

Nýleg sjálfsfróun – Ef maður er nýbúinn að hafa sáðlát, þá getur þurft að bíða aðeins áður en hægt er að koma jafnaldranum í gang á nýjan leik.

„Þetta er eins og að hlaupa maraþon. Líkaminn þarf tíma til að jafna sig áður en lagt er af stað á nýjan leik. Meðalmaðurinn þarf 30 mínútur,“ sagði Brahmbhatt.

Stress eða þreyta – „Ef þú ert stressaður eða órólegur, þá getur það komið þér í bardaga- eða flóttaástand þar sem standpína er það síðasta sem þú hugsar um. Þetta getur einnig aukið bólgur og haft neikvæð áhrif á kynlöngunina,“ sagði Starke.

Nýr bólfélagi – Þetta kannst þú kannski við. Þið náið svo vel saman en um leið og þið reynið að stunda kynlíf, þá verður vinurinn linur og glatar sjálfstraustinu.

Michael Eisenberg, þvagfæralæknir, sagði í samtali við Men‘s Health að það sé mjög algengt að karlar glími við risvandamál þegar þeir eignast nýjan bólfélaga eða maka. Hann sagði að það geti hjálpað til að gera slökunaræfingar og einnig sé góður forleikur gott verkfæri.