Pressan

Segist ekki hafa pissað í fimm ár – Læknar vita ekki ástæðuna

Mynd
Þessi kona átti ekki í vandræðum með að pissa. Mynd úr safni.

Kirstie Scothern segir að allt hafi þetta byrjað með mígreni og að þrátt fyrir fjölda rannsókna hafi læknum ekki tekist að komast að því af hverju hún hafi ekki pissað í fimm ár.

LadBible skýrir frá þessu og segir að Scothern, sem er 29 ára, hafi fengið mígrenikast í apríl 2021. Hún hafi drukkið mikið vatn þennan dag en hafi síðan áttað sig á hún hafði ekki pissað síðan kvöldið áður.

Magi hennar var orðinn þaninn og eiginmaður hennar hringdi því eftir sjúkrabíl.

Scothern var flutt á sjúkrahús í Nottingham þar sem hún var send í myndatöku. Hún afhjúpaði að mígrenið tengdist ekki þvaglátsvandamálunum.

Í raun virtist engin vita af hverju hún gat ekki pissað.

Að lokum dældu læknarnir 2,5 lítrum af þvagi úr þvagblöðru hennar. Hún var síðan send heim með þvaglegg svo hún gæti losað sig við þvag.

Þvagleggurinn var fjarlægður tveimur vikum síðar en staðan var óbreytt, hún gat ekki pissað.

Síðan þá hefur hún farið í fjölda rannsókna og myndatökur en læknar eru engu nær því að vita af hverju hún getur ekki pissað.

Hún neyddist til að hætta í vinnunni sinni og þarf nú sjálf að sjá um að setja upp þvaglegg á fjögurra klukkustunda fresti til að losna við þvag.