Pressan

Er ekki í neinum vafa – Hann er aðalsvikarinn

Mynd
Er Trump svikari?

Þess er vænst að Bandaríkin standi þétt upp við evrópska bandamenn sína en þessar væntingar þarf að endurskoða að mati þekkts sérfræðings í málefnum Rússlands.

Það er breski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Luke Harding sem sagði þetta í samtali við Dagbladet. Harding er sérfræðingur í málefnum Rússlands.

Hann telur að samband Donald Trump og Vladímír Pútíns hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir Úkraínu og öryggi Evrópu.

Hardin, sem hefur starfað sem blaðamaður í Rússlandi og Úkraínu, skrifaði bókina Betrayal: Trump, Putin and The New Age of Conquest. Í henni rannsakar hann tengsl forsetanna tveggja og þróun alþjóðamála eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu.

Hann skefur ekki utan af gagnrýninni á Trump og í samtali við Dagbladet sagði hann: „Aðalsvikarinn í þessari bók er án vafa Donald Trump.“

Hann sagði að Trump hafi ítrekað svikið Úkraínu með samskiptum sínum við Pútín og Zelenskyy, forseta Úkraínu.

Harding telur að pólitísk stefna Trump þjóni rússneskum hagsmunum.

Hann lýsir Trump sem verkfæri Rússa en þetta er mat hans sjálfs og ekki skjalfest niðurstaða um samvinnu Trump og Rússa.

Hann segist einnig óttast að Rússar muni reyna að þreifa fyrir sér varðandi viðbrögð NATÓ. Þetta geti þeir gert með skemmdarverkum, leyniþjónustuaðgerðum eða takmörkuðum hernaðaraðgerðum.

Hann sagðist telja að næstu mánuðir geti orðið afgerandi fyrir öryggi Evrópu og segir að Evrópuríki eigi að taka miklu ákveðnar á Rússum.

Hann nefndi sem dæmi að setja á flugbann yfir Úkraínu sem NATÓ myndi framfylgja.