Þrjú börn og kennari létu lífið þegar sextán ára piltur hóf skothríð í grunnskóla í borginni Bend í Oregon-ríki í Bandaríkjunum síðdegis í gær, fimmtudag.
Tveir til viðbótar særðust lífshættulega í árásinni. Árásarmaðurinn var skotinn til bana af almennum borgara sem elti hann inn í skólabygginguna, að því er fram kemur í frétt Daily Mail af málinu.
Börnin sem létust voru fimm, átta og ellefu ára. Þá voru sjö ára barn og 54 ára kennari flutt á sjúkrahús með lífshættulega áverka.
Atvikið átti sér stað í Silver Rail-grunnskólanum skömmu fyrir klukkan 13 að staðartíma. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hófst atburðarásin þegar árásarmaðurinn skaut á bifreið á bílastæði skólans.
Hann braust því næst inn í skólabygginguna með því að skjóta á læstar dyr og hóf skothríð. Fjöldi neyðarsímtala barst lögreglu á næstu mínútum.
Lögreglumenn komu á vettvang klukkan 13.02, aðeins þremur mínútum eftir að fyrsta neyðarsímtalið barst. Skömmu síðar var árásarmaðurinn skotinn til bana.
Að sögn lögreglu hafði almennur borgari orðið var við piltinn fara inn í skólann og elt hann inn í bygginguna. Þar tókst honum að stöðva árásina með því að skjóta piltinn.
Tina Kotek, ríkisstjóri Oregon, hrósaði manninum fyrir hugrekki hans og sagði hann hafa komið í veg fyrir frekara manntjón.
Ekki liggur fyrir hvað árásarmanninum gekk til. Lögregla rannsakar meðal annars hvort hann hafi haft tengsl við skólann.
Mikil skelfing greip um sig meðal foreldra þegar fregnir af árásinni bárust. Skólanum var lokað og vopnaðir lögreglumenn fóru á milli kennslustofa til að koma börnunum í öruggt skjól.