Nítján ára Norðmaður hefur verið dæmdur í 20 ára fangelsi í Bretlandi fyrir að hafa tekið þátt í samsæri um að fremja morð á vegum sænskra glæpasamtaka sem sögð eru njóta stuðnings íranskra stjórnvalda.
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu en dómur féll í morgun.
Tengsl við Foxtrot-gengið
Ungi maðurinn ferðaðist sérstaklega frá Noregi til Bretlands til að framkvæma morðið en var handtekinn áður en honum tókst að láta til skarar skríða.
Maðurinn heitir Johannes Natland og var handtekinn á hótelherbergi í bænum Huddersfield á Englandi í mars 2025. Við leit í herberginu fundu lögreglumenn tvö skotvopn í nothæfu ástandi auk 19 skota.
Við réttarhöld yfir Natland kom fram að hann hefði verið fenginn til verksins af glæpasamtökunum Foxtrot Network, sem eiga rætur sínar að rekja til Svíþjóðar.
Átti að fá yfir 3 milljónir króna
Natland hafði áður játað að hafa haft skotvopnin og skotfærin í fórum sínum en neitaði sök hvað varðaði samsæri um morð. Kviðdómur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að hann væri sekur.
Samkvæmt upplýsingum frá bresku ákæruvaldinu, sem BBC vitnar til, hafði Natland verið boðin greiðsla upp á 25 þúsund evrur, jafnvirði um 3,4 milljóna íslenskra króna á núverandi gengi, fyrir að fremja morðið.
Natland flaug frá Stavanger í Noregi til Manchester 17. mars 2025. Í kjölfarið fékk hann fyrirmæli um að sækja peninga, skotvopn og skotfæri sem hafði verið komið fyrir á felustöðum í skóglendi í Huddersfield.
Í skilaboðum sem lögregla fann í síma hans kom fram að maður sem kallaði sig „Agent47“ hafði skipulagt verknaðinn. Áður en Natland hélt til Bretlands sagði hann kærustu sinni að hann væri á leið í brjálað verkefni og hygðist drepa mann.
Lögregla handtók hann tveimur dögum eftir komuna til Bretlands. Þá fundust einnig 2.000 pund í reiðufé á hótelherbergi hans.
Ekki hefur tekist að bera kennsl á þann einstakling sem átti að myrða.
Glæpasamtök með tengsl við Íran
Foxtrot-samtökin hafa verið tengd fíkniefnasmygli og alvarlegum ofbeldisbrotum í Svíþjóð og víðar í Evrópu. Bæði Bretland og Bandaríkin hafa beitt samtökin refsiaðgerðum. Þau eru einnig þekkt fyrir að fá ungmenni til að fremja alvarlega glæpi og nýta samfélagsmiðla til að finna einstaklinga sem eru tilbúnir að taka að sér slík verkefni.