Hin blinda og goðsagnakennda spákona Baba Vanga hefur verið kölluð „Nostradamus Balkanlandanna“. Baba Vanga lést árið 1996, áttatíu og fjögurra ára að aldri, en spádómar hennar halda áfram að vekja undrun fólks og hefur hefur haldið tryggum fylgjendum áratugum eftir andlát sitt og trúaðir halda því fram að hún hafi rétt spáð fyrir um sögulega viðburði.
Þó að margar af sýnum hennar séu enn óskráðar þjóðsögur, þá bendir ógnvekjandi spá sem eignuð er dulspekingnum til nóvember 2026. Hélt Baba Vanga því fram að „í nóvember 2026 muni mannkynið komast í fyrsta skipti í snertingu við geimverur þegar risavaxið geimfar fer inn í lofthjúp jarðar.“ Það gefur til kynna að mannkynið muni skyndilega standa augliti til auglitis við geimveru sem kemur í risavaxið móðurskip sem brýst gegnum himininn í næsta mánuði.
Sögulegar heimildir um raunveruleg orð hennar draga hins vegar upp nokkuð flóknari mynd. Þótt fullyrðingar á netinu vísi sérstaklega til loka ársins 2026, bendir sú frásögn sem næst kemur upprunalegu orðunum, og var skráð niður af frænku hennar, Krasimiru Stoyanovu, til þess að spákonan hafi trúað því að verur sem ekki væru mennskar, frá plánetu að nafni Vamfim, væru nú þegar á jörðinni en ósýnilegar.
Stoyanova skráði orð frænku sinnar á þessa leið: „Eftir 200 ár munu menn komast í samband við bræður raunverulega eða í huga frá öðrum heimum.“ Hún mun hafa lýst þessum verum þannig að þær klæddust hálfgegnsæjum skikkjum sem glitruðu eins og fiskihreistur, og hélt því fram að þær væru í leyni að „undirbúa stóran atburð“ fyrir mannkynið.
Koma geimveranna í næsta mánuði er aðeins upphafskaflinn í furðulegri og víðfeðmri tímalínu spádóma sem eignaðir eru spákonunni, en þeir ná hámarki með heimsendi árið 5079.
Samkvæmt þessari meintu tímalínu heimsenda munu vísindamenn í Ungverjalandi nema opinber merki úr djúpgeimnum árið 2125. Þetta mun ryðja brautina fyrir verur sem ekki eru mennskar til að kenna mannkyninu hvernig lifa megi neðansjávar, en það mun gerast fyrir árið 2130. Þessi breyting yfir í líf neðansjávar mun að sögn leiða til hryllilegrar uppgötvunar árið 2221, áður en mönnum tekst að þróa tímaferðalög árið 2288.
Spárnar boða dimma tíma framundan; spáð er skelfilegri hungursneyð á heimsvísu árið 2371 og að ný manntegund komi hratt fram á sjónarsviðið fyrir árið 2378. Talið er að eftirlifandi siðmenning muni, eftir hrikaleg stríð, reisa nýjar borgir um allan heim fyrir árið 4302. Þetta mun leiða til tilkomu eins konar tæknilegrar „stórkirkju“ sem finnur lækningar við öllum mannlegum sjúkdómum.
Árið 4308 munu menn að sögn útrýma öllu hatri og illgirni með því að virkja 34 prósent af getu heilans. Þetta leiðir að lokum til algjörs líffræðilegs ódauðleika og samruna við geimverur fyrir árið 4599 en þá er talið að íbúafjöldi jarðar muni aukast í 340 milljarða. Endapunktinum er svo náð árið 5079, þegar landkönnuðir finna ystu mörk alheimsins. Þetta verður til þess að mannkynið yfirgefur veruleikann alfarið til að kanna hvað leynist hinum megin.