Pressan

Óhugnanlegt leyndarmál fimleikaþjálfarans – Nú bíður hans 90 ára fangelsi

Mynd
Mynd/Getty

Bandarískur fimleikaþjálfari hefur verið dæmdur í 90 ára fangelsi fyrir að hafa komið fyrir falinni myndavél á salerni í fimleikahúsi og tekið ungar stúlkur upp án vitundar þeirra.

Dómurinn yfir hinum 39 ára gamla Sean Gardner féll í gær fyrir alríkisdómstóli í Mississippi. Hann hafði játað þrjú brot sem vörðuðu framleiðslu á kynferðislegu myndefni af börnum og var dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir hvert brot. CBS News greinir frá.

Gardner hafði komið fyrir falinni myndavél á salerni í fimleikahúsi í bænum Purvis í Mississippi á árunum 2017 og 2018. Rannsókn FBI leiddi í ljós myndbönd sem sýndu að minnsta kosti tíu börn og ungmenni þar sem þau voru ýmist nakin eða hálfnakin.

Við húsleit á heimili hans lögðu rannsakendur hald á um 50 myndbönd og 400 ljósmyndir.

Gardner starfaði síðar hjá þekktu fimleikafélagi í Iowa, þar sem hann þjálfaði meðal annars efnilegar stúlkur sem stefndu að þátttöku á Ólympíuleikum.

Nokkrir fyrrverandi nemendur hans þar hafa sakað hann um kynferðislega áreitni og misnotkun. Ein þeirra, Finley Weldon, var aðeins ellefu ára þegar hann tók við þjálfun hennar.

„Ég vissi að eitthvað var ekki í lagi með hann,“ sagði hún í viðtali við CBS News og lýsti óviðeigandi hegðun hans á æfingum, til dæmis snertingum og kossum.

Málið hefur einnig vakið spurningar um viðbrögð bandarískra fimleikayfirvalda. Samkvæmt málshöfðunum gegn Gardner bárust eftirlitsstofnunum ábendingar um hegðun hans strax árið 2017, en hann hélt áfram að þjálfa börn um árabil.

Það var ekki fyrr en árið 2022 sem honum var tímabundið bannað að starfa sem þjálfari eftir að ásakanir um kynferðisofbeldi komu fram. Honum var þá einnig sagt upp störfum.

Gardner hefur ekki verið ákærður vegna ásakananna í Iowa, en 90 ára fangelsisdómurinn í Mississippi jafngildir í raun lífstíðarfangelsi.