Leynileg rannsókn bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV hefur leitt í ljós gróf rasísk, kynferðisleg og ofbeldisfull ummæli kjörinna fulltrúa og frambjóðenda Breska umbótaflokksins, Reform UK, stjórnmálaflokks Nigel Farage. Meðal annars kallaði einn sveitarstjórnarmaður eftir því að Karl Bretakonungur yrði hálshöggvinn og annar ræddi um að flytja fólk af asískum uppruna nauðugt úr landi.
Blaðamenn fréttaskýringaþáttarins ITV Exposure störfuðu undir fölsku yfirskini og notuðust við falda myndavél til að eiga í samskiptum við frambjóðendur flokksins og kjörna fulltrúa á sveitarstjórnarstigi víðs vegar um England og Wales. Rannsóknin náði yfir en upptökurnar voru teknar upp í fyrra og fyrr á þessu ári, bæði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í landinu í maí og í aukakosningum sem koma reglulega fyrir í landinu, en kjósa þarf nýjan fulltrúa ef einhver segir af sér. Upptökurnar afhjúpa ýmsar skoðanir flokksmanna sem fóru leynt og hafa ummæli þeirra vakið spurningar um hvernig flokkurinn velur sína frambjóðendur.
Rannsóknin kemur í kjölfar yfirlýsinga Nigel Farage, leiðtoga flokksins, um að öfgamenn og fordómafullir einstaklingar eigi ekkert erindi í flokkinn, það væru „skemmd epli“. „Við viljum ekki öfgamenn, við viljum ekki fordómafullt fólk og við viljum ekki fólk sem hugsar á þennan hátt,“ sagði Farage á flokksþingi í Birmingham í september 2024. Flokkurinn hefur verið að sækja í sig veðrið síðustu misseri og er nú með rúmlega 2.300 sveitarstjórnarfulltrúa, hreinan meirihluta í 23 sveitarstjórnum og er stærsti flokkurinn í 12 til viðbótar.
Vildi draga fólk út af heimilum þeirra og setja í flugvél
Alan Feeney, sveitarstjórnarmaður í Solihull, var einn þeirra sem blaðamenn ITV fylgdust með og tóku upp með falinni myndavél. Feeney hætti í Íhaldsflokknum og gekk til liðs við Reform UK, var hann í framboði í sveitarstjórnarkosningunum í maí síðastliðnum og barðist fyrir að halda sæti sínu.
Feeney lýsti hverfinu sínu sem „sýktu“ af asískum fjölskyldum og kallaði þær „algjör sníkjudýr“. Þegar hann væri að banka upp á hjá fólki til að afla atkvæða þá vildi hann ekki ræða við fólk af asískum uppruna.
„Ef þetta er asískt nafn banka ég ekki einu sinni upp á. Þau kjósa ekki Reform og ég ætla ekki að eyða tíma mínum,“ sagði hann og kallaði kosningabaráttuaðferð sína „rasíska húsagöngu Alans“.
Feeney hélt því jafnframt fram að fólk sem ekki væri hvítt ætti að vera að hámarki eitt prósent bresku þjóðarinnar. Þegar talið barst að múslimum í Bretlandi sagði hann að þeir væru alls staðar, meðal annars innan dómskerfisins, í skólunum og í heilbrigðisþjónustunni, þar sem þeir væru að vinna gegn hagsmunum annarra Breta.
„Það þarf alvöru kjarnorkulausn. Bókstaflega að draga þetta fólk út af heimilum sínum, troða því upp í flugvélar og senda það til Pakistan,“ sagði Feeney. Feeney náði kjöri og er varabæjarstjóri. Aðrir frambjóðendur flokksins sögðu á upptöku að þeir ætluðu að koma í veg fyrir moska risi í bænum og viðruðu hugmyndir um að grafa svínakótilettur þar sem hún á að rísa, einnig voru viðhöfð gróf ummæli um konur og kynferðisofbeldi.
Vildi hálshöggva Karl Bretakonung
Dean Miller sem er sveitarstjórnarmaður í Bromle, lét einnig falla gróf ummæli þegar hann tók þátt í kosningabaráttu flokksins í Makerfield. Miller heyrist á upptökunni segja að hvítir Bretar sættu þjóðernishreinsunum í London vegna fjölgunar fólks af erlendum uppruna.
„Þetta eru allt börn af öðrum þjóðernisuppruna. Þau eru ekki hvít, þau eru öll fjandans svört og haga sér eins og fjandans dýr.“
Hann bætti síðan við að hræðilegt væri að segja þetta en fullyrti jafnframt að hann væri ekki rasisti. Miller hélt því svo fram að Karl Bretakonungur væri í raun múslimi.
„Svo virðist sem Karl konungur sé fjandans múslimi,“ sagði Miller og vísaði til sögusagna um að bænamotta hefði fundist í einu herbergja konungsins. Hann kallaði það landráð og sagði að hálshöggva ætti konunginn.
Miller hefur síðan sagt sig úr Reform UK. Hann sagði ITV að hann hefði verið undir miklum áhrifum lyfja vegna langvinnra verkja þegar ummælin féllu.
„Þegar maður er kominn inn getur maður gert það sem maður vill“
Rannsókn ITV leiddi ekki aðeins í ljós fordómafull ummæli heldur einnig hvernig nokkrir kjörnir fulltrúar ræddu um að fela raunverulegar skoðanir sínar fyrir kjósendum til að ná völdum.
Feeney sagði við blaðamann ITV að stjórnmálamenn þyrftu að vera útsjónarsamir til að höfða til sem flestra.
„Maður verður bara að vera svolítið klókur til að ná til breiðs hóps. Þegar maður er svo kominn inn getur maður gert það sem maður vill,“ sagði hann.
Tveir aðrir sveitarstjórnarmenn flokksins, David Kerr og Adam Parkins í Hounslow, ræddu sömuleiðis um nauðsyn þess að halda aftur af umdeildum stefnumálum þar til flokkurinn hefði náð völdum.
„Það sem fólki finnst óþægilegt á maður ekki einu sinni að tilkynna. Maður á bara að gera það,“ sagði Parkins.
Hann bætti við að aðalatriðið væri að ná kjöri og að flokkurinn þyrfti ekki endilega að segja kjósendum hvað hann hygðist gera.
Raymond Dunning, sveitarstjórnarmaður í Tameside , lýsti róttækum hugmyndum þegar hann ræddi við blaðamann ITV á krá. Dunning, sem sagðist hafa verið beðinn um að bjóða sig fram til breska þingsins, sagðist vilja vísa öllum úr landi sem hann teldi ekki eiga þar heima, þar á meðal börnum þeirra.
Þegar blaðamaðurinn spurði hvort það ætti einnig við um fólk sem hefði flutt löglega til Bretlands svaraði Dunning því játandi og sagði að sumir hefðu fengið dvalarleyfi án þess að eiga það skilið.
Dunning lagði það til að ungir menn á aldrinum 18 til 30 ára yrðu þjálfaðir að hætti hermanna svo þeir gætu farið götu úr götu og hús úr húsi til að hafa hendur í hári fólks. Annar flokksmaður sagði þá að slíkt myndi valda óeirðum. „Við munum fá óeirðir ef við tökum ekki á þessu,“ svaraði Dunning.
Flokkurinn rannsakar flokksmennina
Þátturinn hefur vakið mikil viðbrögð í Bretlandi. Ed Davey, leiðtogi Frjálsra demókrata, sagði að það væri skelfilegt að sjá ummælin í þættinum.
This is chilling. I feel for anyone watching this tonight who is frightened to see such racism and hatred festering in their community. It's the very worst of what we’re seeing in Trump’s America. We can’t let it become Farage’s Britain.
— Ed Davey (@EdwardJDavey) October 14, 2026
Reform UK hefur staðfest við ITV að rannsóknir séu hafnar á framferði þeirra flokksmanna sem komu við sögu.
Í yfirlýsingu frá flokknum segir að flokksmennirnir hafi hegðað sér á óviðeigandi hátt og að mál þeirra verði tekin til skoðunar. Flokkurinn segist hafa bætt og hert ferlið við að yfirfara bakgrunn frambjóðenda en viðurkennir að einstaka einstaklingar sem deili ekki gildum flokksins geti komist í gegnum það.
Richard Tice, varaformaður Reform UK, hefur jafnframt sakað einn þeirra sem birtust í upptökum ITV um að vera útsendara Íhaldsflokksins sem hafi ætlað að koma óorði á Reform UK. Hann nafngreindi ekki einstaklinginn en lýsing hans virtist eiga við Feeney.