Pressan

Rannsakaði fljúgandi furðuhluti fyrir Pentagon og opnar sig nú upp á gátt - „Heimurinn á rétt á að vita af þessu“

Mynd

Áður en Jay Stratton lét af störfum fyrir bandaríska herinn fór hann fyrir verkefnahópi hjá Pentagon sem var falið að rannsaka tilkynningar um fljúgandi furðuhluti. Þessu verkefni sinnti hann í tæp tuttugu ár. Hann lýsir því í samtali við People hvernig líf hans snerist á kvöld haustið 2005, en þá kom kollegi til hans með myndband og bað hann að útskýra hvað þar væri að sjá.

Stratton horfði á myndbandið og fann kalt vatn renna milli skinns og hörunds. Myndbandið sýndi himininn á einu viðkvæmasta bannsvæði bandarísku lofthelginnar, nálægt skotbyrgi fyrir kjarnorkueldflaugar.

„Ég get bókstaflega enn spilað myndbandið í höfðinu á mér,“ segir Stratton en á myndbandinu mátti sjá svart þríhyrnt loftfar með appelsínugulum, gulum og hvítum ljósum sem lýstu á hverju horni. Það hreyfðist hljóðlaust áður en það virtist svo storka lögmálum eðlisfræðinnar með því að auka hraðann hraðar en augað gat fylgt – og svo var það horfið.

„Þetta var augnablikið sem breytti heimsmynd minni,“ sagði Stratton sem hafði ekki hugmynd um hvað hann var að horfa á. Hann leitaði svara og varði næstu 16 árunum í að rannsaka fljúgandi furðuhluti. 

Við erum ekki ein

„Mér fannst það ábyrgðarhlutverk mitt að deila þessari sögu,“ segir Stratton en í bókinni fjallar hann meðal annars um 80 ára herferð upplýsingaóreiðu sem var ætlað að hylma yfir þau áform Bandaríkjanna að taka geimför sem hefðu hrapað til jarðar og bakhanna þau til að vinna úr þeim tækninýjungar, nokkuð sem bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur neitað fyrir. Eins fjallar hann um meint kynni af geimverum.

„Við erum ekki eina vitsmunalífið í alheiminum,“ segir Stratton en hann fullyrðir að 21 stofnun og ráðuneyti hafi farið yfir bók hans áður en honum var heimilað að gefa hana út.

„Við vitum ekki hvað vakir fyrir þessum vitsmunaverum sem eru ekki mennskar og hafa hingað komið,“ segir Stratton og bendir á að fljúgandi furðuhlutir virðist einkum sækja í hernaðar- og kjarnorkusvæði.

„Heimurinn á rétt á að vita af þessu,“ segir Stratton sem segir að fljúgandi furðuhlutir séu raunverulegir, þeir hafi brotlent á jörðinni og flugmenn þeirra voru ekki mennskir. Verktakar á vegum hersins hafi í höndunum tugi slíkra furðuhluta.

Brotlendingin í Roswell var raunveruleg

Vinsæl samsæriskenning er að fljúgandi furðuhlutur hafi brotlent í Roswell í Nýju Mexíkó árið 1947. Stratton segist hafa rætt við heimildarmann sem staðfesti að brotlendingin hafi átt sér stað. Geimfarið hafi brotnað í tvo hluta sem herinn fjarlægði ásamt áhöfninni, sem var ekki mennsk.

„Sum þeirra voru látin á vettvangi en önnur, eða svo er sagt, voru lifandi en létust síðar eftir að hafa neitað mat og aðstoð. Samskiptin voru takmörkuð og oft tilgangslaus.“

Stratton segir að þeir sem hafi átt kynni við vitsmunaverur úr geimnum og tæknina sem þær búa yfir hafi margir sagt störfum sínum lausum, fengið taugaáfall og jafnvel svipt sig lífi.

„Sannleikurinn reyndist þeim um megn“

Sjálfur segist Stratton hafa staðfest tilvist geimvera og brak fljúgandi furðuhluta með sínum eigin augum. Hann telur rétt að heimsbyggðin sé upplýst en þessu sé viljandi haldið leyndu, ekki einu sinni forsetar Bandaríkjanna hafa verið upplýstir að fullu. Upplýsingar eru bundnar miklum trúnaði en Stratton gefur til kynna að það sé leynilegt kalt stríð í gangi milli Rússlands, Kína og Bandaríkjanna þar sem keppst er um að greina og nýta geimverutæknina. Stratton sér fyrir sér sögulega stund þegar leyndinni verður loks aflétt og forseti Bandaríkjanna stígur fram á blaðamannafundi til að segja heiminum að við séum ekki ein.