Dominique Elissa, 31 árs, áströlsk fyrirsæta, sem gerir út á vellíðun á samfélagsmiðlum og er ófrísk, segist í áfalli eftir að flugþjónn neitaði að lyfta rúmlega 4 kílóa handfarangurstösku hennar upp í farangurshólfið fyrir hana.
Elissa greindi frá atvikinu í hlaðvarpinu Big Small Talk í síðustu viku. Sagðist hún hafa upplifað virðingarleysi í sinn garð og flugþjónninn hefði sagt henni að hún þyrfti að innrita töskuna ef hún gæti ekki lyft henni sjálf.
„Ég var í flugi um daginn. Ég bað flugþjóninn: Geturðu vinsamlegast sett töskuna mína í farangurshólfið fyrir mig? Ég er ólétt,‘“ sagði Elissa.
„Og flugþjónninn sagði: Ef þú getur ekki lyft… og hann lyfti henni ekki upp. Hann sagði: Ég get ekki hjálpað þér, því miður. Já, hann sagði: Ég get ekki hjálpað þér. Þetta var karlmaður,“ sagði Elissa. „Og þá sagði ég: Jæja, ég er reyndar ólétt; ég væri mjög þakklát ef þú gætir hjálpað mér, því síðast meiddist ég. Hann sagði: Ef þú getur ekki lyft töskunni fyrir ofan höfuð þá verður þú að láta innrita hana. Og þetta var ekki stór taska,“ hélt Elissa áfram.
Samtalið um borð í fluginu olli því að hún varð „hissa og slegin“ og fannst skorta „virðingu“ fyrir óléttum konum, sagði Elissa.
Fjöldi flugþjóna tjáði sig í athugasemdakerfinu á Instagram og benti á að þeim væri einfaldlega óheimilt að lyfta töskum fyrir farþega.
„Ástæðan er sú að við erum tæknilega séð ekki komin á vakt fyrr en hurðin lokast; ef við slösumst á meðan farþegar ganga um borð fáum við því ekki bætur vegna vinnuslyss... því miður,“ skrifaði einn þeirra.
Í athugasemdakerfinu skiptist fólk í tvær fylkingar.
„Þú sagðir bókstaflega rétt áðan að þú hefðir slasast við að lyfta þinni eigin tösku. Ef þú ræður ekki við handfarangurinn þinn skaltu innrita töskuna (það er ókeypis). Auk þess er þungun ekki fötlun,“ skrifaði einn reiður notandi.
„Guð minn góður!!! Ef ég hefði verið þarna hefði ég, þrátt fyrir að vera 64 ára, stokkið upp og lyft henni fyrir þig!!! Hvílík skömm!! Ég er viss um að hún hafi ekki vegið 16 kg eins og þriggja ára gamla barnabarnið mitt,“ skrifaði kona.
Fólk innan fluggeirans hefur lengi bent á að starfsfólki flugfélaga sé óheimilt að lyfta töskum vegna ábyrgðarinnar sem því fylgir.
„Flugþjónar eru þjálfaðir í að lyfta aldrei farangri fyrir farþega þar sem það er ein helsta orsök meiðsla,“ sagði Taylor Garland, talskona Association of Flight Attendants-CWA „Auk fjárhagslegrar áhættu og heilsufarsáhættu fyrir flugþjóna gæti þetta leitt til tafa eða jafnvel þess að flugi sé aflýst.“