Pressan

„Frankensteining“ er eitruð sambandshegðun sem þú gætir verið að beita án þess að átta þig á því

Mynd
Mynd: Getty.

„Frankensteining“ hefur verið kallað eitruð hegðun í stefnumótum og samskiptum og sérfræðingur varar við því að margir gætu verið að beita henni í samskiptum án þess að gera sér grein fyrir því.

Nýtt hugtak Frankensteining er komið inn í umræðuna, eitthvað sem íslenskast ekki vel, en hegðun sem einhverjir ættu að kannast við. Frankensteining getur áhrif á sjálfsálit fólks og tilfinningalega líðan, og oft án þess að viðkomandi geri sér grein fyrir því. Hegðunin getur falið í sér misvísandi merki, óraunhæfar væntingar eða hegðun sem fær annan einstaklinginn til að efast um stöðu sína gagnvart maka sínum, en sérfræðingar vara við því að þessi tiltekna hegðun gæti verið algengari en fólk gerir sér grein fyrir.

Í viðtali við VICE útskýrði hjónabands- og fjölskylduráðgjafinn Sara Sloan : „Frankensteining er eitthvað sem hefur alltaf verið vandamál þegar kemur að stenumótum. Það felur í sér að reyna að móta eða breyta útliti, áhugamálum og venjum maka þíns til að passa betur við það sem þú telur vera hinn fullkomna maka þinn.“

Mynd
Mynd: Getty.

Og sérfræðingurinn benti á að það væri ein sérstök leið til að koma auga á þennan eiginleika meðal annarra.

„Ein leið til að taka eftir því hvort þú ert að Frankensteina maka þinn er að hugsa: Ef þau myndu bara (settu hér eitthvað sem þér finnst að viðkomandi ætti að betrumbæta), þá væri það svo miklu betra,“ benti hún á.

„Ef þú ert að kaupa ný föt á maka þinn, sem eru gjörólík því sem viðkomandi klæðist venjulega til að skapa annan stíl, þá ertu að Frankensteina maka þinn.“

„Ef þú biður maka þinn um að breyta háralitnum sínum til að hann passi við þínar óskir, þá ertu að Frankensteina hann. Ef þú krefst þess að hann taki þátt í áhugamálum sem þú hefur gaman af en hann hefur ekki gaman af þá ertu að Frankensteina maka þinn.“

Sálfræðingurinn benti á að þetta gerist oftast „þegar nýja sambandsorkan dvínar“, þegar fólk reynir að forðast að slíta sambandinu og snúa aftur inn í stefnumótaumhverfið.

„Það getur verið auðveldara að Frankensteina maka þinn í eitthvað sem passar við þínar hugmyndir,“ benti hún á.

Sloan ráðleggur að leyfa maka þínum að „viðhalda sjálfstæði sínu“ frekar en að reyna að breyta honum. „Leyfðu þeim að vera öðruvísi en þú, eða öðruvísi en hugsjónin þín. Að Frankensteina maka þinn er í raun leið til að stjórna þeim með því að reyna að breyta því hver þau eru líkamlega, andlega eða tilfinningalega.“