Brúðkaupsferð bandarískra hjóna til Botsvana í Afríku breyttist í martröð þegar flóðhestur réðst á þau þegar þau voru í bátsferð. Eiginmaðurinn lenti í kjafti dýrsins en eiginkona hans dó ekki ráðalaus og eru viðbrögð hennar talin hafa bjargað lífi hans.
Hjónin Sam og Anna McKee, sem eru frá Port Angeles í Washington-ríki í Bandaríkjunum, höfðu gengið í hjónaband við ströndina í Portúgal aðeins tíu dögum áður. Í september í fyrra héldu þau í brúðkaupsferð til Botsvana þar sem þau ætluðu meðal annars að skoða hina stórbrotnu Okavango-óshólma.
Bandaríska tímaritið People greinir frá málinu og vísar meðal annars í viðtal við hjónin í breska sjónvarpsþættinum Good Morning Britain.
Hjónin voru á ferð um svæðið í hefðbundnum trébáti ásamt leiðsögumanni þegar þau áttuðu sig á því að þau höfðu rekið frá öðrum ferðamönnum og á svæði þar sem vatnið er dýpra en annars staðar. Leiðsögumenn höfðu áður varað við flóðhesti á svæðinu og sagt að þau ættu að halda sig fjarri honum.
Ógnvekjandi sjón
Skyndilega heyrði Sam, sem er 31 árs, mikinn skvettugang og ógnvekjandi hljóð fyrir aftan sig. Þegar hann sneri sér við sá hann flóðhest stefna að bátnum með galopinn kjaft.
„Það fyrsta sem ég hugsaði var að ég mætti ekki detta úr bátnum,“ sagði Sam í viðtalinu.
Hann greip um báðar hliðar bátsins en á sama augnabliki varð hann fyrir gríðarlegu höggi frá vinstri. Flóðhesturinn greip um búk hans með kjálkunum og þrýsti honum niður í vatnið.
„Til að byrja með var adrenalínið svo mikið að ég fann varla fyrir sársauka. Ég fann bara fyrir krafti sem ég get ekki lýst. Það næsta sem ég get líkt þessu við er bílslys,“ segir hann.
Lá þversum í kjaftinum
Við árásina köstuðust Anna og leiðsögumaðurinn einnig út í vatnið. Þegar Anna komst aftur upp á yfirborðið var hún ringluð og áttaði sig í fyrstu ekki á því hvað hafði gerst.
Þá blasti við henni skelfileg sjón. Eiginmaður hennar lá þversum í kjafti flóðhestsins.
„Ég ákvað að berjast,“ sagði Anna þegar hún lýsti því hvernig hún brást við hættunni.
„Hugsanirnar voru út um allt. Þetta er ekki raunverulegt. Þetta getur ekki verið að gerast. Sam er dáinn. Hann er að deyja.“
Anna sagði að hún hefði síðan hlaupið í átt að flóðhestinum, kreppt hnefana og látið höggin dynja á dýrinu.
Að lokum sleppti flóðhesturinn takinu á Sam og hörfaði. Önnu tókst þá að aðstoða eiginmann sinn upp á bakkann áður en dýrið gat ráðist á þau aftur.
Sam sagðist ekki hafa vitað af hetjulegri baráttu eiginkonu sinnar fyrr en síðar.
Þegar hann komst upp úr vatninu reyndi hann að ganga í átt að Önnu en áttaði sig þá á því að hann gat ekki hreyft vinstri fótinn.
„Ég reyndi að ganga til hennar en vinstri fóturinn hlýddi einfaldlega ekki því sem heilinn sagði honum að gera.“
Þegar Anna sá hversu alvarlega slasaður Sam var óttaðist hún aftur að hann myndi ekki lifa af.
Komst á sjúkrahús 18 tímum síðar
Hjónin voru stödd á afskekktu svæði þar sem aðgangur að læknisþjónustu var afar takmarkaður. Að sögn bandaríska miðilsins Cascadia Daily News liðu meira en þrettán klukkustundir áður en Sam fékk verkjalyf og alls átján klukkustundir þar til hann komst á sjúkrahús í nágrannaríkinu Suður-Afríku.
Áverkar hans voru miklir og ljóst að verr hefði getað farið. Hann þurfti að gangast undir bráðaaðgerð á kviðarholi og þurfti meðal annars að vera í öndunarvél um tíma.
Þrátt fyrir allt lifði Sam árásina af og hefur náð ótrúlega góðum bata. Rúmu ári síðar segist hann aðeins finna fyrir minniháttar verkjum og óþægindum.
Hjónin hafa skrifað bók um lífsreynslu sína og vonast til að fá hana gefna út áður en langt um líður.
Anna segir að þrátt fyrir skelfilega reynslu hafi þau hjónin ótal ástæður til að vera þakklát.
„Þetta var hræðilegt á meðan á því stóð en við höfum svo margt að þakka fyrir. Sam er besti vinur minn. Við höfum verið saman í fjórtán ár, síðan við vorum í menntaskóla, og ég er einfaldlega ótrúlega þakklát fyrir að við fáum meiri tíma saman.“