Pressan

Yfirmaður MI5 varar við hættulegum tímum: „Etja okkur hvert gegn öðru“

Mynd
Ken McCallum, yfirmaður MI5. Mynd/MI5

Ken McCallum, yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, segir að öryggisumhverfi heimsins standi nú á tímamótum sem væru sambærileg og eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001, þeir sem vilji gera samfélögum illt notist við skautun til að etja fólki gegn hvort öðru. Hann segir Bretland standa frammi fyrir fjölþættum ógnum, meðal annars frá Rússlandi, Íran og hryðjuverkasamtökum, auk vaxandi hættu sem fylgi þróun gervigreindar.

McCallum lét þessi orð falla þegar hann kynnti árlegt mat MI5 á öryggisógnum sem steðja að Bretlandi, sagði hann að heimurinn væri kominn inn í nýtt tímabil þar sem hefðbundnar ógnir og nýjar tæknilegar hættur færu saman.

Hann sagði að ríki á borð við Bretland stæðu frammi fyrir umfangsmiklum ógnum í formi íkveikja, skemmdarverka, netárása, þvingana og ofbeldis. Að hans mati gæti þetta ótrygga ástand varað árum saman.

Ber stöðuna saman við 11. september

McCallum, sem hefur starfað hjá MI5 í þrjá áratugi, rifjaði upp hvernig hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin árið 2001 hefðu gjörbreytt starfsemi leyniþjónustunnar.

„Fimm árum eftir að ég hóf störf urðu árásirnar 11. september, sem kostuðu nærri 3.000 manns lífið og lögðu líf ótal annarra í rúst,“ sagði hann.

„Þetta var gríðarlegt áfall sem breytti heiminum og breytti MI5. Við þurftum að gjörbreyta starfsemi okkar til að takast á við nýja tegund ógnar.“

Hann sagði að sambærileg tímamót væru nú runnin upp.

„Við stöndum aftur á slíkum tímamótum. Við erum komin inn í nýtt tímabil þjóðaröryggis sem kallar á ný viðbrögð.“

Rússland mesta ógnin

McCallum sagði Rússland áfram vera mestu ógnina við þjóðaröryggi Bretlands, en Íran fylgdi þar fast á eftir. Jafnframt væri hættan af hryðjuverkum enn veruleg.

Hann sagði ógnir frá fjandsamlegum ríkjum nú orðnar sambærilegar að umfangi við hryðjuverkaógnina, sem fæli í sér mikla breytingu frá því sem áður var. Öryggi þjóða snúist ekki eingöngu um hernaðarátök, njósnir eða netárásir á mikilvæga innviði.

„Hugsið líka um staðinn þar sem þið búið og vinnið. Hugsið um truflun á raforkukerfinu sem sér heimili ykkar fyrir rafmagni. Hugsið um samkunduhúsið eða moskuna í hverfinu sem þarf að grípa til aukinna öryggisráðstafana.“

Hann hvatti fólk jafnframt til að hugleiða áhrif skautunar á samfélagsmiðlum og það efni sem beint væri til unglinga. 

McCallum greindi frá því að MI5 væri núna með verkefni sem nefnist „Protect“ og miðar að því að efla viðnámsþrótt bresks samfélags gagnvart utanaðkomandi ógnum.

Verkefnið nær meðal annars til verndar mikilvægra innviða, fjármálakerfisins, raforkukerfa, aðfangakeðja og iðnaðar. Annar mikilvægur þáttur verkefnisins snýr að tilraunum fjandsamlegra afla til að hafa áhrif á tilfinningar og viðhorf almennings.

„Þeir sem vilja okkur illt reyna að sundra samfélögum okkar og etja okkur hvert gegn öðru, oft með aðstoð algórithma sem ýta undir skautun,“ sagði McCallum.

Hann varaði við því að slík þróun gæti ýtt undir hatur, aukið spennu milli samfélagshópa og jafnvel leitt til ofbeldis.

Sérstaklega nefndi hann vaxandi áhyggjur af ofbeldi sem beinist gegn stjórnmálamönnum, trúarhópum og öðrum samfélagshópum.

Gervigreind gæti auðveldað þróun sýklavopna

Þriðji þáttur nýrrar öryggisstefnu MI5 snýr að tæknilegri viðnámsgetu samfélagsins og þeim hættum sem fylgja hraðri þróun gervigreindar.

McCallum sagði gervigreind þegar hafa gjörbreytt baráttunni milli þeirra sem framkvæma netárásir og þeirra sem reyna að verjast þeim.

Hún gæti jafnframt verið notuð til að framleiða áróðurs- og öfgafullt efni sem væri sérsniðið að einstökum einstaklingum.

„Við höfum komið upp um hryðjuverkamenn sem reynt hafa að nýta gervigreind til að bæta upplýsingaöflun sína og aðferðir við árásir,“ sagði hann og nefndi að drónar búnir gervigreind bættu nýrri vídd við ógnina.

Mestar áhyggjur sagðist hann þó hafa af möguleikanum á að gervigreind yrði nýtt við þróun lífefnavopna eða sýklavopna.

„Það hefur ekki enn orðið að veruleika, en sú misnotkun gervigreindar sem ég tel ástæðu til að hafa mestar áhyggjur af er möguleiki hennar til að gjörbreyta hættunni sem stafar af núverandi eða jafnvel nýjum líffræðilegum vopnum.“

McCallum undirstrikaði að hann og samstarfsfólk hans væru vön að takast á við alvarlegar ógnir og létu ekki auðveldlega slá sig út af laginu.