Kona sem var úti að ganga með hundinn sinn í bænum Cinisello Balsamo, skammt frá Mílanó á Ítalíu, síðdegis í gær varð fyrir óvæntri og átakanlegri reynslu þegar hún heyrði einkennilegt hljóð berast úr poka sem hafði verið skilinn eftir við götuna.
Þegar hún gekk nær kom í ljós að í pokanum var nýfæddur drengur sem grét.
Í fréttum ítalskra fjölmiðla kemur fram að konan hafi haldið ró sinni þrátt fyrir óhugnanlega uppgötvun og hringt á neyðarlínuna eftir aðstoð.
Sjúkrabíll var sendur á vettvang og drengurinn fluttur á Niguarda-sjúkrahúsið í Mílanó.
Að sögn sjúkrahússins vó drengurinn um fjögur kíló og var lítillega ofkældur þegar hann fannst. Hann var hitaður upp og fékk væga öndunaraðstoð. Líðan hans er nú talin nokkuð góð en hann er áfram undir nánu eftirliti á sjúkrahúsi.
Talið er að drengurinn hafi fæðst aðeins nokkrum klukkustundum áður en hann fannst. Hluti fylgjunnar var enn fastur við hann og í pokanum var lítið klæði sem talið er að móðir hans hafi sett utan um hann til að verja hann gegn kuldanum.
Ítalska lögreglan rannsakar nú hvernig barnið endaði í pokanum og reynir að hafa uppi á móður þess. Meðal annars er verið að fara yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum á svæðinu.
Málið hefur vakið mikla athygli í Cinisello Balsamo, þar sem búa rúmlega 75 þúsund manns.
Giacomo Ghilardi, bæjarstjóri, segir að drengurinn hafi fundist undir tré skammt frá kirkju í bænum. Hann veltir því fyrir sér hvort móðirin hafi hugsanlega verið á leið með barnið þangað en leggur áherslu á að ekkert sé vitað um aðdraganda málsins.
Bæjarstjórinn hvetur fólk til að forðast að fella dóma meðan rannsókn lögreglu stendur yfir. Hann segir bæjarfélagið reiðubúið að veita þann stuðning sem þörf er á.