Pressan

Nýjar upptökur afhjúpa ótrúlega ringulreið þegar aftaka Christu Pike fór úrskeiðis - Töldu að um gabb væri að ræða

Mynd
Christa Pike.

Mikil ringulreið ríkti meðal fangelsisstarfsmanna og viðbragðsaðila eftir að aftaka Christu Pike í Tennessee í Bandaríkjunum fór úrskeiðis í lok síðasta mánaðar.

Nýjar upptökur af neyðarsímtölum leiða í ljós að það tók um hálftíma að fá staðfest að neyðarkall frá fangelsinu væri raunverulegt en ekki gabb.

BBC greinir frá þessu og vísar meðal annars til fréttastofunnar Associated Press og bandaríska fréttamiðilsins Nashville Banner, sem hefur birt upptökur og afrit af neyðarsímtölunum.

Töldu að um gabb væri að ræða

Pike, sem er fimmtug, var dæmd til dauða fyrir hrottalegt morð á Colleen Slemmer árið 1995. Hún fékk tvo skammta af banvæna lyfinu pentóbarbítali við aftökuna 30. september síðastliðinn en lifði þá báða af. Að lokum var hún flutt á sjúkrahús þaðan sem hún hefur nú verið útskrifuð.

Fyrsta neyðarkallið frá Riverbend-fangelsinu barst klukkan 20:40 að staðartíma. Starfsmenn Neyðarlínunnar töldu hins vegar að um gabb væri að ræða þar sem sá sem hringdi gat ekki staðfest hver hann væri með tilskildum öryggiskóða.

„Við höfum verið að framkvæma aftöku hér í kvöld. Við höfum gefið viðkomandi tíu grömm af pentóbarbítali. Einstaklingurinn er enn á lífi. Þetta hófst fyrir um klukkustund og við erum að óska eftir sjúkrabíl,“ sagði sá sem hringdi.

Ekki minnkaði ringulreiðin þegar starfsmenn í stjórnstöð fangelsisins sögðu klukkan 21:07 að það hefði verið þeirra hlutverk að kalla eftir neyðaraðstoð og að þeir hefðu ekki hringt neitt slíkt símtal.

Það var ekki fyrr en klukkan 21:11, rúmum hálftíma eftir fyrsta símtalið, sem fangelsisyfirvöld staðfestu að neyðarkallið væri raunverulegt. Þá fyrst fengu sjúkraflutningamenn að fara inn um fangelsishliðin.

Fordæmalaust mál

Lögmenn Pike telja að lyfið sem henni var sprautað með hafi að verulegu leyti farið undir húðina í stað þess að berast út í blóðrásina. Það gæti skýrt hvers vegna aftakan mistókst, en yfirvöld hafa ekki enn staðfest hvað fór úrskeiðis.

Pike hefur nú verið útskrifuð af sjúkrahúsi sem fyrr segir og flutt aftur í fangelsið. Hún hefur náð aftur getu til að ganga og tala en lögmenn hennar segja að löng og erfið endurhæfing sé fram undan.

Mál hennar er talið fordæmalaust þar sem hún er talin eina manneskjan sem hefur lifað af aftökutilraun með banvænni lyfjagjöf.

Enn er óljóst hvort yfirvöld muni reyna aftur að taka hana af lífi. Bill Lee, ríkisstjóri Tennessee, hefur stöðvað allar aftökur í ríkinu út árið á meðan rannsókn fer fram á atvikinu.

Lögmenn Pike hafa farið fram á að dauðadómi hennar verði breytt í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Yfirmaður fangelsismála í Tennessee hefur jafnframt ákveðið að láta af störfum í kjölfar málsins.