Bandarískur fangi sem myrti klefafélaga sinn í þeim tilgangi að verða dæmdur til dauða verður að óbreyttu tekinn af lífi í Flórída í kvöld.
Maðurinn, James Robertson, er 63 ára og hefur ítrekað hafnað því að áfrýja dauðadómi sínum. Robertson játaði að hafa kyrkt klefafélaga sinn, Frank Hart, í desember árið 2008.
Morðið var framið í Charlotte-fangelsinu í Flórída þar sem mennirnir afplánuðu dóma. Samkvæmt dómsskjölum batt Robertson saman nokkra sokka og notaði þá til að kyrkja Hart á meðan hann svaf.
Við yfirheyrslur sagði Robertson að Hart hefði ekkert gert til að kalla yfir sig árásina. Hann hefði einfaldlega viljað verða dæmdur til dauða í stað þess að eyða því sem eftir væri ævinnar á bak við lás og slá.
Robertson var aðeins 17 ára þegar hann fór fyrst í fangelsi árið 1980, eftir að hafa verið dæmdur fyrir innbrot og líkamsárás. Fangelsisvist hans lengdist ítrekað vegna brota sem hann framdi innan veggja fangelsisins, meðal annars líkamsárása, vopnalagabrota og flóttatilrauna.
Eftir morðið á Hart játaði Robertson sök og afsalaði sér rétti til sérstakrar málsmeðferðar þar sem kviðdómur hefði tekið afstöðu til refsingarinnar. Hann var í kjölfarið dæmdur til dauða.
Robertson hefur síðan hafnað öllum tilraunum til að fá dómnum hnekkt. Við fyrirtöku fyrr í þessum mánuði staðfesti hann að hann skildi að aftaka hans væri yfirvofandi og að hann hygðist ekki leita til hæstaréttar Flórída eða Hæstaréttar Bandaríkjanna.
Verði aftakan framkvæmd verður hún sú sautjánda í ríkinu á þessu ári. Flórída hefur framkvæmt fleiri aftökur en nokkurt annað bandarískt ríki það sem af er ári.
Mál Robertsons vakti á sínum tíma töluverða athygli og var meðal annars fjallað um það í Netflix-þáttunum I Am a Killer árið 2018 þar sem Robertson ræddi málið á opinskáan hátt.