Hinn 17 ára gamli Wyatt Anderson hljóp yfir marklínuna í Bank of America Chicago-maraþoninu á sunnudaginn á tímanum 3:56:28 aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann óttaðist að hann myndi aldrei geta gengið aftur.
Í nóvember í fyrra var Anderson, þá nemandi á lokaári menntaskóla, að spila körfubolta með vinum sínum þegar hann datt í baráttu um frákast og skall með höfuðið á vegg.
Höggið var svo harkalegt að Anderson hryggbrotnaði og gat ekki hreyft sig. „Ég missti meðvitund í stutta stund í kjölfarið og gat ekki hreyft neinn útlim,“ sagði Anderson við ABC News. Hann gekkst síðan undir aðgerð þar sem hryggjarliðir voru festir saman, og í kjölfarið fylgdu margir mánuðir í endurhæfingu þar sem Anderson þurfti að læra að ganga á ný.
„Þetta var mér stöðugt í huga; ég velti því fyrir mér hvort ég myndi nokkurn tímann geta gengið aftur, hvort ég gæti gert það sama og ég gerði fyrir tveimur vikum eða jafnvel bara degi áður,“ sagði hann.
Þá sagði einn af endurhæfingarþjálfurunum honum hvetjandi sögu af manni sem hljóp 50 maraþon í 50 mismunandi fylkjum á einu ári, sitjandi í hjólastól.
„Þetta sló mig algjörlega út af laginu og veitti mér innblástur,“ sagði Anderson. Þegar hann endurheimti smám saman hreyfigetu í kjölfar margra vikna sjúkraþjálfunar, sagði unglingurinn að sagan hefði hvatt hann til þess að ná ekki aðeins bata, heldur líka að „ganga eða hlaupa maraþon innan árs.“
Anderson sagði að það hefðu komið tímabil þegar ekki virtist sem hlutirnir myndu „batna,“ en hann minnti sjálfan sig á að „hver dagur væri skref fram á við“ og að hann ætti einfaldlega að „segja já við hverju tækifæri.“
Í apríl lauk hann við Kentucky Derby Festival-hálfmaraþonið, hlaup sem er 21 km að lengd. En hálfmaraþonið var aðeins upphitun fyrir raunverulegt markmið hans: að ljúka Chicago-maraþoninu. Þegar Anderson lagði af stað frá ráslínunni ásamt bróður sínum, Jack Anderson, á sunnudaginn, var markmið hans ekki aðeins að ljúka hlaupinu heldur einnig að hvetja aðra.
„Ég vona að saga mín hvetji aðra til að setja sér háleit markmið og trúa því að ekkert sé ómögulegt,“ sagði hann við ABC News. „Maður getur gert hvað sem er ef maður leggur hugann við það og ég tala af reynslu, enda var ég á tímabili ófær um að ganga en hleyp núna.“
Bræðurnir hlupu einnig til að safna fé fyrir Christopher and Dana Reeve-sjóðinn, sem styður rannsóknir, hagsmunagæslu og úrræði fyrir fólk með mænuskaða. Saman söfnuðu þeir meira en 24.000 Bandaríkjadölum.