Pressan

Hér er rottugangurinn mestur samkvæmt nýjum lista

Mynd

New York og Los Angeles eru áfram í efstu sætum lista yfir þær bandarísku stórborgir þar sem mest er um rottu- og músagang, samkvæmt nýrri úttekt bandaríska fyrirtækisins Terminix sem sérhæfir sig í meindýravörnum.

Detroit er hins vegar ný á listanum, en borgin hefur lengi glímt við rottu- og músagang sem hefur valdið íbúum talsverðu hugarangri.

Úttektin byggir á fjölda þjónustubeiðna sem bárust rúmlega 300 starfsstöðvum fyrirtækisins víðs vegar um Bandaríkin árið 2025. Bandaríska dagblaðið New York Post greinir frá niðurstöðunum.

New York trónir á toppnum, Los Angeles er í öðru sæti og Fíladelfía hefur færst upp í það þriðja. Meðal annarra borga á listanum eru aðrar stórar og fjölmennar borgir eins og Chicago, Houston, Washington, Boston og Dallas.

Athygli vekur að Detroit kemst nú í fyrsta sinn í hóp þeirra tíu borga þar sem mest er leitað til fyrirtækisins vegna nagdýra. Borgin var í ellefta sæti á síðasta lista.

Rottugangur hefur lengi verið vandamál í Detroit. Mary Sheffield, núverandi borgarstjóri, vakti athygli á ástandinu árið 2023 þegar hún gegndi embætti forseta borgarstjórnar.

Í minnisblaði sem Fox News Digital birti greindi Mary frá því að rottugangur hefði verið meðal helstu umkvörtunarefna íbúa á fundi sem hún hélt.

Íbúar hefðu meðal annars bent á að yfirgefnar byggingar og fasteignir sem biðu niðurrifs væru orðnar að gróðrarstíum fyrir rottur.

Samkvæmt Terminix eiga borgirnar á listanum þrennt sameiginlegt: mikinn fólksfjölda, auðvelt aðgengi að mat og góða felustaði fyrir nagdýr.

Mikið magn matarleifa og úrgangs í þéttbýli skapar rottum og músum kjöraðstæður. Ruslagámar, húsasund og almenningsgarðar veita þeim greiðan aðgang að fæðu, á meðan eldri byggingar, neðanjarðarlestarkerfi og fráveitur bjóða upp á skjól og hreiðurstæði.

Fyrirtækið hvetur fólk til að þétta sprungur og op á húsum, geyma matvæli í lokuðum ílátum og gæta þess að matarleifar safnist ekki fyrir.