Pressan

Háskólaprófessor sakaður um að pissa á skólatösku nemanda - Rannsókn málsins varpaði ljósi á fleiri tilvik

Mynd

Bandarískur háskólaprófessor hefur verið kærður fyrir eignaspjöll en honum er gert að sök að hafa pissað á skólatösku nemanda. Frá þessu greinir NDTV.

Prófessorinn er hinn 55 ára gamli Paul Fischer sem kennir líffræði við háskólann Macalester í Minnesota. Meint atvik mun hafa átt sér stað þann 5. desember. Nemandinn segist hafa brugðið sér frá tösku sinni skamma stund en svo komið að töskunni pissublautri. Grunaði nemandann að Fischer bæri ábyrgð á þessu þar sem hann var sá eini sem var nálægt töskunni á þessum tíma. Nemandinn hafði samband við yfirvöld og lagði fram kvittun til að sýna að um rándýra tösku var að ræða sem kostaði ný um 250 þúsund krónur.

Við rannsókn málsins uppgötvaði lögregla að skólanum hafði áður borist sex tilkynningar um þvag á óvenjulegum stöðum í vísindadeild skólans, þar með talið í ruslatunnum, vatnsflöskum og jafnvel í skrautmunum sem tilheyrðu öðrum kennurum við skólann. Við yfirheyrslu mun Fischer hafa viðurkennt að hann hefði undanfarin tvö ár vanið sig á að pissa í bolla og hella svo úr þeim í ruslatunnur eða í vaska á rannsóknarstofu skólans. Mögulega hafi hann sullað úr slíkum bolla yfir skólatösku nemandans.

Fischer hefur kennt við skólann í rúm 25 ár en lauk störfum um áramótin eftir að rannsókn á meintu athæfi hans hófst. Hann á nú yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi og rúmlega milljón króna sekt en aðalmeðferð í málinu hefst í nóvember.