Dýragarðurinn Yorskshire Wildlife Park í Bretlandi hefur verið lokaður undanfarna daga eftir að tígrisdýrið Altai varð manni að bana um helgina. Ekki er ljóst hvað vakti fyrir manninum þegar hann fór inn á afgirt svæði tígrisdýrsins, en dýragarðurinn hefur tilkynnt að tígrisdýrið verði ekki aflífað vegna atviksins.
Kona sem býr í nágrenni dýragarðsins furðar sig á viðbrögðum fólks við atvikinu, en öll samúðin virðist vera með dýrinu frekar en hinum látna. Angela Seivewright telur ljóst að hinn látni hafi glímt við áskoranir og því sé sturlað að sjá að samúð fólks virðist alfarið vera með dýrinu. Hún sagði í samtali við miðilinn LBC:
„Þegar ég fór á samfélagsmiðla um helgina og sagðist vona að það væri í lagi með manninn varð ég fyrir níði þar sem fólk sagði að hann hefði átt skilið að deyja. Ég á barn með sérþarfir og ég held að hann hafi verið að tala táknmál við tígrisdýrið. Svo mér finnst bara virkilega ósanngjarnt að fólk hafi nánast óskað þess að hann myndi deyja í stað þess að vona að enginn hefði orðið fyrir skaða. Þetta kom mér í uppnám. Dóttir mín gengur í skóla þarna við hliðina og við búum handan við hornið. Ég hélt að það yrðu fleiri blóm þarna.“
Þar vísar Angela til þess siðs að leggja blóm við vettvang harmleiks til að minnast þeirra sem látið hafa lífið. Hún er með ársaðgang í dýragarðinn en veit ekki hvort hún muni sjá sér fært að nýta hann eftir atvikið.
„Ég veit ekki hvort þeir hafi gert allt sem þeir gátu til að bjarga honum, lífi hans, frekar en að gera eitthvað til að bjarga tígrisdýrinu. Mér finnst þetta áfellisdómur yfir samfélaginu þegar fólki er meira annt um tígrisdýrið. Það er bara sorglegt að hann sé ekki syrgður meira en þetta.“
Veltir Angela fyrir sér hvort dýragarðurinn sé með fullnægjandi ferla í gangi hvað varðar gesti með sérþarfir.
„Ég hefði bara haldið að fólk myndi hafa meiri samúð með aðila sem deyr með þetta hrottalegum hætti og sem skortir getu til að taka eigin ákvarðanir og er í viðkvæmri stöðu.“
Myndbönd af atvikinu eru í dreifingu en þar má sjá hvar maðurinn, sem virkar nokkuð ungur, situr fyrir framan tígrisdýrið. Vitni hafa lýst því að maðurinn hafi verið dansandi með heyrnartól á eyrunum. Hann hafi verið glaður og nálgast aðra gesti og beðið þá um að taka myndir. Síðar sáu vitnin að maðurinn var kominn inn á afgirta svæðið. Nokkur vitni hafa lýst því svo að það hafi verið augljóst að maðurinn glímdi við alvarlega einhverfu.