Það er óhætt að segja að Donald Trump sé heltekinn af einum manni. Hann hefur nefnt hann þrisvar á dag að meðaltali, á opinberum vettvangi, það sem af er ári.
Það er Joe Biden sem situr svona ofarlega í huga Trump en hann hefur kennt Biden um margt sem aflaga hefur farið í Bandaríkjunum, allt frá verðbólgunni til vandræða með vopnalagera.
Trump hefur nefnt forvera sinn í ræðum, viðtölum og færslum á Truth Social, sem er samfélagsmiðill í eigu Trump.
Þetta sýnir samantekt Reuters fréttastofunnar.
Biden lét af embætti fyrir 20 mánuðum og hefur að mestu haldið sig fjarri sviðsljósinu síðan, meðal annars vegna heilsufarsvandamála. En það breytir því ekki að hann er sífellt skotmark Trump þegar hann þarf að reyna að varpa ábyrgðinni á eigin gjörðum og vandræðum yfir á einhvern annan.
Reuters segir að Trump hafi nefnt Biden að minnsta kosti 120 sinnum í tengslum við efnahagsmálin, 168 varðandi innflytjendamál og 138 sinnum í tengslum við utanríkismál og þjóðaröryggi.
Trump hefur meðal annars kennt Biden um hátt verð á ýmsu í Bandaríkjunum en í kosningabaráttunni lofaði Trump að verðlag myndi lækka ef hann yrði kjörinn forseti en verðbólgan er enn vandamál og Trump hefur ekki tekist að ná stjórn á henni.
Innflytjendamál eru einnig ofarlega í huga Trump þegar hann ræðst á Biden. Hann sakar Biden um að hafa verið með stefnu sem gerði að verkum að metfjöldi ólöglegra innflytjenda kom frá Mexíkó.
Trump hefur líka ítrekað ráðist persónulega að Biden og hefur ítrekað sett spurningarmerki við andlega getu hans.