Þegar hringt er inn í tíma í skólum barna Vilhjálms krónprins Bretlands og Katrínar krónprinsessu, þá má segja að þau hengi hina fínu konunglegu titla sína á snagana í fatahenginu.
Þrátt fyrir að börnin séu meðal þekktustu andlitanna í Bretlandi, þá lifa þau ótrúlega venjulegu lífi innan veggja skólanna sem þau ganga í.
Þar nota þau önnur nöfn en almenningur er vanur. Georg prins, sem er númer tvö í erfðaröðinni að bresku krúnunni, Charlotte prinsessa og Louis prins bera dags daglega þung konungleg nöfn sín með stolti en í skólastofunni þurfa þau ósköp venjulegt eftirnafn þegar kemur að því að skila verkefnum.
Þess vegna eru „skólanöfn“ þeirra einfaldlega Georg Wales, Charlotte Wales og Louis Wales. Newsner skýrir frá þessu.
Þessi nafnabreyting var gerð í kjölfar andláts Elísabetar II haustið 2022 en þá tóku foreldrar barnanna við titlunum sem prins og prinsessa af Wales.
Fram að því notuðu börnin nafnið Cambridge í skólanum. Með því að nota titil föður síns sem eftirnafn halda börnin í sérstaka og huggulega fjölskylduvenju. Faðir þeirra og föðurbróðir, Harry prins, notuðu einnig nafnið Wales til að falla inn í hópinn þegar þeir gengu í skóla.