Pressan

Sérfræðingur segir að ef þú gerir þetta tvennt fyrir svefninn getir þú lengt lífið um 4 ár

Mynd
Ætli þau hafi fengið sér mjólkurglas fyrir svefninn?

Það eru ekki ný tíðindi að svefn skiptir lykilmáli þegar kemur að því að endurhlaða líkamann og heilann, styrkja ónæmiskerfið, stilla skapið af og til að hafa matarlystina í jafnvægi.

Vísindamenn hjá tryggingafélaginu Vitality og London School of Economics and Political Science segja að tvennt, sem er gert þegar farið er í háttinn, geti bætt fjórum árum við líf okkar.

„Lengi hefur verið vitað að svefn skiptir máli en það hefur ekki verið litið á hann sem daglega venju eins og hreyfingu sem er hægt að mæla og bæta,“ sagði Dr. Katie Tryon, aðstoðarforstjóri Vitality Health, að sögn The Post.

Hún sagði að fyrir flesta séu sjúkdómar ekki vandamál, heldur rútínur. Með því að endurhugsa svefn á þennan hátt sé hægt að breyta skipulagi dagsins, með því sé svefn gerður að einhverju sem er hægt að mæla, hafa áhrif á og bæta.

Greining á rúmlega 47 milljónum skráðra svefnnótta sýndi að sjö klukkustunda svefn á nóttu og fastur háttatími, sem má þó sveiflast til um klukkustund, geti dregið úr líkunum á ótímabæru andláti um 24% og líkurnar á sjúkrahúsinnlögn minnka um 7%.

Sérfræðingar ráðleggja fólki yfirleitt að sofa sjö til níu klukkustundir á nóttu en margir ná ekki þessum tímafjölda.

Í fyrrgreindri greiningu kom einnig fram að einn af hverjum þremur sefur skemur en sjö klukkustundir á nóttu. Vitality segir að þetta fólk sé 20% líklegra til að deyja ótímabærum dauða en þeir sem sofa sjö til átta klukkustundir á nóttu.

Krónískur svefnskortur eykur einnig líkurnar á hjartasjúkdómum, sykursýki og þunglyndi.

Vitality segir að það skipti meira máli að háttatíminn sé reglulegur en svefnlengdin því óreglulegur háttatími tengist aukinni hættu á sjúkrahúsinnlögn.

Vísindamennirnir segja að ef þú vilt sofa betur þá sé mikilvægt að vera með fastan háttatíma, vera með sömu rútínuna fyrir svefninn, slökkva á skjám klukkustund áður og nota tæki til að mæla og skrá svefninn.