Vladímír Pútín, forseti Rússlands, er einn valdamesti maður heims. Hann ræður för í stærsta landi heims og tók ákvörðun um að ráðast inn í Úkraínu fyrir tæpum fimm árum.
En hverjir hvísla í eyru Pútíns? Sumir þeirra eru í hinni opinberu valdaröð í Kreml en minna fer fyrir öðrum og halda þeir sig að mestu til hlés frá kastljósinu.
Ef litið er á hverjir standa Pútín næst opinberlega koma mörg nafn fram. Meðal þeirra eru Alexandr Bortnikov, Nicolai Patrusev og Valerii Gerasimov. Þeir hafa mikil völd því þeir sjá um að veita Pútín upplýsingar um stöðu mála í Rússlandi, stríðið í Úkraínu, hvað önnur ríki taka sér fyrir hendur og margt annað.
Valerii Gerasimov er æðsti yfirmaður rússneska hersins. Hann hefur verið í fararbroddi varðandi stríðsreksturinn í Úkraínu og þar á undan var hann áberandi varðandi varnarmál. Myndir af honum og Pútín birtast oft, til dæmis þegar það er verið að sjósetja nýtt herskip eða ræða um stríðið í Úkraínu.
Nicolai Patrusev er oft nefndur sem hugsanlegur arftaki Pútíns en hann er aðstoðarmaður hans í dag. Hann er því ansi háttsettur innan veggja Kreml. Áður var hann formaður rússenska öryggisráðsins.
Alexandr Bortnikov er yfirmaður FSB leyniþjónustunnar og býr því yfir sama bakgrunni og Pútín. Hann ber ábyrgð á að flytja Pútín fréttir er varða þjóðaröryggi.
„Það er áhugavert að reyna að finna út úr hverja Pútín hlustar á. Það er fólk sem hann hlustar á af því að það er starfið þeirra að tala við hann. Þetta eru yfirmenn leyniþjónustustofnana, forsætisráðherrann, ritari öryggisráðsins,“ sagði Mark Galeotti, breskur sérfræðingur í málefnum Rússlands og Kreml, í samtali við B.T.
Hann hefur rannsakað Pútín og dimmustu afkima Kremlar og rússnesku valdavélarinnar árum saman og er talinn einn fremsti sérfræðingur heims á þessu sviði.
Hann sagði mjög áhugavert að rannsaka hina opinberu leiðir til Pútíns í Kreml en það séu líka fleiri sem ná eyrum hans. „Við vitum að margt af mikilvægasta fólkinu í kringum Pútín eru ekki embættismenn, það eru vinir hans,“ sagði Galeotti.
Hvaða fólk er þetta?
Galeotti benti meðal annars á Rotenberg-bræðurna tvo. Það eru Arkday og Boris Rotenberg. Sá fyrrnefndi er náinn vinur Pútíns og er samband þeirra margra ára gamalt. Þeir tengdust tryggðaböndum í St Pétursborg.
Bræðurnir hafa aldrei komið nærri hinni opinberu valdavél en reka fyrirtæki, meðal annars í byggingariðnaði, sem hafa svo sannarlega notið góðs af vináttu þeirra við Pútín.
Galeotti nefndi einnig Gennady Timtjenko til sögunnar en vinátta þeirra nær aftur til tíma þeirra í St Pétursborg. Timtjenko hefur aðallega sinnt fyrirtækjarekstri í olíu- og efnaiðnaðinum. Hann hefur aðstoðað Pútín við viðskipti innanlands og í varnarmálageiranum.
Galeotti sagði að þetta fólk hafi ekki orðið opinberir embættismenn því það sé í vinahópi Pútíns.
Þegar hann var spurður af hverju þetta fólk hafi ekki áhuga á opinberum stöðum, stóð ekki á svarinu: „Ef Pútín er vinur þinn, af hverju ekki bara að verða óhugnanlega ríkur í staðinn fyrir að fá starf hjá hinu opinbera? Þetta er fólk, sem vegna verndar Pútíns, hefur orðið milljarðamæringar.“