Spænska lögreglan hefur bjargað 25 ungum konum úr klóm glæpahrings á ferðamannaeyjunni Ibiza. Greint er frá þessu á vef Guardia Civil, spænska þjóðvarðliðsins.
Konurnar voru lokkaðar til Spánar með fölskum atvinnutilboðum en þegar þangað var komið var þeim gert að greiða háar skuldir með því að stunda vændi. Fjórir einstaklingar hafa verið handteknir vegna málsins.
Allt annað beið þeirra
Aðgerðin, sem bar heitið Gecaroni, náði hámarki 5. október síðastliðinn þegar Guardia Civil lét til skarar skríða eftir margra mánaða rannsókn.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu beindist starfsemi glæpahringsins einkum að ungum konum frá Venesúela, á aldrinum 18 til 25 ára, sem bjuggu við erfiðar félagslegar og fjárhagslegar aðstæður.
Konunum var boðin vinna á hótelum, veitingastöðum eða við naglasnyrtingu á Spáni. Þegar þær komu til landsins reyndist veruleikinn hins vegar allt annar.
Skuld upp á 700 þúsund krónur
Meðlimir glæpahringsins tóku á móti konunum á flugvellinum, gerðu hluta af eigum þeirra og reiðufé upptækan og fluttu þær í húsnæði á vegum samtakanna.
Þar var þeim tilkynnt að þær skulduðu um 5.000 evrur, jafnvirði rúmlega 700 þúsund íslenskra króna. Skuldina áttu þær að greiða með því að veita kynlífsþjónustu.
Konurnar sættu ströngu eftirliti og þurftu að vera stöðugt reiðubúnar að sinna viðskiptavinum. Að sögn lögreglu nýttu glæpamennirnir sér ótta kvennanna við að lenda í vandræðum hjá innflytjendayfirvöldum til að koma í veg fyrir að þær leituðu sér aðstoðar.
Rannsókn lögreglu leiddi jafnframt í ljós að notast var við myndavélar til að fylgjast með ferðum kvennanna. Viðskiptavina var meðal annars aflað í gegnum skilaboðaforrit og á skemmtanasvæðinu Platja d'en Bossa, einum þekktasta næturlífsstað Ibiza. Konurnar voru einnig fluttar heim til viðskiptavina.
Lifðu hátt á starfseminni
Glæpahringurinn starfaði einkum á Ibiza yfir sumarmánuðina þegar ferðamannastraumurinn er mestur. Að sumri loknu var hluti starfseminnar fluttur til annarra svæða á meginlandi Spánar.
Samkvæmt lögreglu höfðu samtökin einnig tekjur af sölu fíkniefna og kynörvandi efna til viðskiptavina.
Ágóðinn gerði meðlimum glæpahringsins kleift að lifa hátt, meðal annars með því að leigja lúxushúsnæði og dýra bíla. Þá leikur grunur á að fyrirtæki tengd meintum leiðtoga samtakanna hafi verið notuð til að þvætta ágóða af glæpastarfseminni.
Við umfangsmiklar húsleitir á fjórum stöðum á Ibiza lagði lögregla hald á tæplega 120 þúsund evrur í reiðufé, jafnvirði 16,5 milljóna íslenskra króna, auk fíkniefna, raftækja og eftirlitsbúnaðar.
Fjórir einstaklingar voru handteknir og 25 konum bjargað sem fyrr segir.
Hinir handteknu eru grunaðir um mansal í þeim tilgangi að misnota konur kynferðislega, fíkniefnasölu og peningaþvætti. Málið er til rannsóknar hjá spænskum yfirvöldum.