Pressan

Gloria var myrt fyrir 65 árum – Engan óraði fyrir því hvert rannsóknin myndi leiða

Mynd

Morð á átta ára stúlku í bandarísku borginni Chicago, sem hafði verið ráðgáta í rúma 65 ár, er nú talið upplýst með aðstoð nýrrar DNA-tækni.

Niðurstaða rannsóknarinnar hefur vakið mikla athygli enda telur lögreglan að morðinginn hafi verið maður sem síðar starfaði sjálfur sem rannsóknarlögreglumaður í morðdeild borgarinnar.

Stúlkan hét Gloria Kowalewicz og hvarf þann 12. nóvember árið 1960 þegar hún var á leið frá heimili sínu í West Englewood-hverfinu til kirkju í nágrenninu. 

Lík hennar fannst síðar í skóglendi, nokkra kílómetra frá heimili fjölskyldunnar, og hafði hún verið skotin tvisvar í höfuðið.

Morðið vakti mikinn óhug og umfangsmikil leit hófst að ódæðismanninum. Lögreglumenn, slökkviliðsmenn, skátar og fyrrverandi hermenn tóku meðal annars þátt í leitinni en þrátt fyrir vísbendingar tókst aldrei að bera kennsl á morðingjann.

DNA leiddi á slóð fyrrverandi lögreglumanns

En nú, rúmum 65 árum síðar, hafa orðið afgerandi vendingar í málinu. Samkvæmt umfjöllun Chicago Tribune tókst rannsakendum að tengja mann að nafni Thomas Francis McInerney, fyrrverandi rannsóknarlögreglumann í Chicago, við morðið með hjálp DNA-upplýsinga úr ættfræðigagnagrunni.

McInerney var 24 ára þegar Gloria var myrt og bjó í næstu götu við heimili fjölskyldu hennar.

Frekari rannsóknir á DNA, fingraförum og skotvopnagögnum leiddu lögregluna að þeirri niðurstöðu að hann hefði líklegast borið ábyrgð á dauða stúlkunnar.

McInerney starfaði hjá lögreglunni í Chicago í 28 ár en hann færði sig um set og hóf störf hjá stofnun sem veitir sakborningum lögfræðiaðstoð. Hann lét af störfum árið 2004 og lést tveimur árum síðar.

Í frétt New York Post kemur fram að árið 2003 hafi hann hlotið viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf við rannsóknir sakamála.

Þungbært fyrir lögregluna

Kevin Bruno, yfirmaður rannsóknarlögreglunnar í Chicago, segir niðurstöðuna sérstaklega þungbæra í ljósi þess að hinn grunaði hafi sjálfur verið lögreglumaður.

„Sú staðreynd að hann var lögreglumaður er okkur öllum, sem höfum helgað starfsævi okkar þessari göfugu starfsgrein, afar þungbær,“ sagði Bruno við Chicago Tribune.

McInerney var fimm barna faðir og átti fjölda barnabarna.