Pressan

Gervigreind sendi lögreglunni falska ábendingu í morðmáli

Mynd
Mynd/Getty

Gervigreindarmódel, frá Anthropic, sendi lögreglunni í Philadelphia í Bandaríkjunum falska ábendingu varðandi óleyst morðmál. Þetta gerði gervigreindin algjörlega upp á eigin spýtur.

Lögreglan í Philadelphia segir að ábendingin hafi borist í júlí í gegnum opinbera heimasíðu þar sem fólk getur sent inn ábendingar varðandi óleyst morðmál.

Anthropics segir að þetta hafi gerst þegar gervigreindarmódelið var að gera tilraun þar sem það átti í samskiptum við heimasíður sem voru valdar tilviljanakennt.

Þegar gervigreindin kom að heimasíðunni PhillyUnsolvedMurders.com sendi hún inn falskar upplýsingar varðandi óleyst morðmál.

Gervigreindin þóttist vera manneskja sem byggi hugsanlega yfir vitneskju um málið.

Það liðu rúmlega tveir mánuðir þar til Anthropic uppgötvaði þetta og stöðvaði tilraunina.

Lögreglan segir þetta vera algjörlega óásættanlegt. „Óleyst mál tengjast raunverulegum fórnarlömbum, syrgjandi fjölskyldum og lögreglumönnum sem reyna að leysa málin,“ sagði í yfirlýsingu frá lögreglunni.