„Margar kynlífsverkakonur hafa sagt mér að þær neiti að taka við kvenkynsviðskiptavinum vegna slæmrar reynslu af þeim. Ég þekki kynlífsverkakonur sem konur, sem pöntuðu paratíma, öskruðu á af því að þær vildu ekki sjá eiginmanninn njóta þess svona mikið að vera rassskelltur.“
Svona hefst grein eftir kynlífsverkakonu sem var birt á vef Metro og áfram heldur hún:
„Önnur vinkona mín sagði mér að kona hefði hellt heilum sykurpakka í handtöskuna hennar eftir hafa fundist hún verið vanrækt.
Ég er bara með þrjár konur sem fasta viðskiptavini og þær eru allar frekar kröfuharðar, öfundsjúkar og með þráhyggju. Ein hringir strax í mig ef ég svara ekki skilaboðum nægilega hratt.
Karlar gera þetta ekki. Mín reynsla er að þeir eigi auðveldara með að aðskilja kynlíf og tilfinningar. Það er ástæða fyrir að karlar borga mér, þakka fyrir og fara heim til konunnar og hugsa ekki aftur til mín fyrr en þeir verða aftur graðir.
Mér líkar þetta við karla og heilinn minn starfar á svipaðan hátt. Hinn fullkomna sviðsmynd, í huga mínum, er þessi: „Eigum við að ríða, Melissa?“ „Ó, frábært!“ „Eigum við síðan aldrei aftur að tala saman?“ „Fullkomið!“
Hún sagði síðan að það sé algeng hugsun að það séu aðallega karlmenn sem séu með eitthvað blæti. Það sé ekki rétt, konur séu líka með blæti en það sé greinilegur munur á birtingarmyndinni.
„Til dæmis, þá vilja konur oft þykjast vera skólastúlkur, með pennaveski, fléttur og tyggjó. Ef tyggjóið er búið, þá dugar víngúmmí, og ef þær finna ekki pennaveski, þá skemmir það ekki hugmyndina. Þetta er ekki svona hjá körlum. Þeir eru undarlega, endalaust nákvæmir, sem þýðir að það er miklu auðveldara að gera þá ánægða,“ skrifaði hún og bætti við: „Fyrir mig, þá er sú staðreynd að konur hafa mjög ákafar hvatir en óljósar kröfur ávísun á að það er mjög erfitt að fullnægja þeim, gera þær ánægðar og þær eru meira en viljugar til að láta þig vita þegar þær eru ekki ánægðar. Þetta er ástæðan fyrir, vegna geðheilsu minnar, að ég tek ekki við fleiri kvenkyns viðskiptavinum.“