Pressan

Davis var aðeins 16 ára þegar hann lést – Foreldrar hans vara við hættu sem margir vanmeta

Mynd
Feðgarnir Sean og Davis saman.

Sean og Heidi Cripe munu aldrei gleyma símtalinu sem þau fengu frá skóla sonar síns fyrir tæpum áratug. Sonur þeirra, Davis, hafði verið fluttur í skyndi á bráðamóttöku eftir að hafa drukkið orkudrykk. Skömmu síðar var hann látinn, aðeins 16 ára gamall.

„Hann hafði þambað orkudrykk, svona til að reyna að vera töff,“ sagði faðir hans, Sean Cripe, í samtali við AP-fréttaveituna á dögunum.

Hjarta Davis fór úr eðlilegum takti og hann lést. Við rannsókn á andláti hans kom í ljós að Davis hafði einnig drukkið Mountain Dew-gosdrykk og kaffidrykk frá McDonald's fyrr um daginn.

Samkvæmt réttarmeinafræðingi hafði drengurinn ekki verið með neinn þekktan hjartasjúkdóm. Talið var að mikil koffínneysla á skömmum tíma hefði valdið banvænum hjartsláttartruflunum.

Læknar vara við alvarlegum afleiðingum

Nú, tæpum áratug síðar, hefur hópur bandarískra lækna tekið höndum saman til að vekja athygli á hættunni sem orkudrykkir geta skapað fyrir börn og unglinga.

Tilefnið er styrktarsamningur orkudrykkjaframleiðandans Monster Energy við Big 12, samtök bandarískra háskóla sem keppa sín á milli í ýmsum íþróttagreinum.

Læknarnir hafa farið fram á að styrktarsamningurinn verði settur á ís og að markaðssetning orkudrykkja gagnvart börnum og unglingum verði endurskoðuð. Þeir vísa meðal annars til dauðsfalla þriggja barna, þar á meðal Davis Cripe.

„Börn munu nú sjá orkudrykki auglýsta af háskólunum og íþróttafólkinu sem þau líta upp til og vilja líkjast,“ segir hjartalæknirinn Matthew Nelson.

Hann óttast að ungmenni fari að líta á orkudrykki sem venjulega íþróttadrykki, þótt þar sé um gjörólíkar vörur að ræða.

Læknar benda á að orkudrykkir geti innihaldið allt að 300 milligrömm af koffíni í einum skammti. Mikil koffínneysla getur meðal annars valdið hjartsláttartruflunum, háum blóðþrýstingi, svefntruflunum og jafnvel flogum.

Bandaríska barnalæknaakademían ráðleggur börnum og unglingum að forðast orkudrykki alfarið.

„Við vissum ekki að þeir gætu verið banvænir“

Þrátt fyrir viðvaranir lækna er neysla orkudrykkja útbreidd meðal bandarískra ungmenna. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar Monitoring the Future, sem The University of Michigan stóð að, segjast 23 prósent nemenda á síðasta ári framhaldsskóla drekka orkudrykki daglega.

Monster Energy hefur svarað gagnrýninni og bendir á að orkudrykkir hafi verið seldir um allan heim í meira en þrjá áratugi. Fyrirtækið segir að yfir 100 milljarðar slíkra drykkja hafi verið seldir og þeirra neytt með öruggum hætti.

Faðir Davis segir fjölskylduna hafa varað son sinn við orkudrykkjum áður en harmleikurinn varð. Þau hafi hins vegar ekki gert sér grein fyrir því hversu alvarlegar afleiðingarnar gætu orðið.

„Við höfðum rætt við hann og sagt honum að þessir drykkir væru ekki hollir. En við vissum ekki að þeir gætu verið banvænir.“

Hann vonast nú til þess að saga sonar hans verði öðrum foreldrum víti til varnaðar.

„Við vonum innilega að foreldrar geti lært af reynslu okkar og þeim harmleik sem við höfum gengið í gegnum og nýtt hana til að vara sín eigin börn við.“