Brenda Lin, 15 ára, var í flugvél á leið í skólaferðalag. Þetta var í fyrsta sinn sem hún ætlaði að vera svona lengi fjarri fjölskyldu sinni og þess utan gat hún ekki tekið þátt í hinni hefðbundnu fjölskyldusamkomu Lin-fjölskyldunnar þar sem öll fjölskyldan kom saman.
Fjölskyldan, sem var frá Kína en bjó nú í Ástralíu, samanstóð af foreldrunum Lily og Min, sem voru 43 og 45 ára, Henry 12 ára og Terry 9 ára, svo Brendu. Móðursystir hennar Irene, 39 ára, bjó einnig hjá fjölskyldunni. Föðursystirin Kathy og Robert Xie maður hennar, sem bjuggu nærri, komu oft í heimsókn og borðuðu með fjölskyldunni.
Brenda hugsaði með smá eftirsjá til föður síns því hún vildi ekki faðma hann á flugvellinum. Hann var alltaf til staðar fyrir hana en á flugvellinum fannst henni vandræðalegt að faðma hann fyrir framan bekkjarsystkinin, hún var ekkert barn lengur. Hún huggaði sig með að hún gæti faðmað hann þegar hún myndi hitta hann eftir viku. En hún hafði rangt fyrir sér.
Laugardagsmorguninn 18. júlí 2009 komu viðskiptavinir að læstum dyrum á sjoppunni í litla bænum North Epping, sem er úthverfi Sydney. Það var óvenjulegt að það væri lokað og Kathy varð áhyggjufull yfir að bróðir hennar, Min, faðir Brendu, hefði ekki mætt til vinnu. Hún náði heldur ekki símasambandi við hann. Kathy fór því heim til Lin fjölskyldunnar ásamt eiginmanni sínum, Robert.
Það var óvenjulega hljótt heima hjá Lin-fjölskyldunni og það var óvenjulegt því þar var venjulega mjög líflegt. Þegar Kathy opnaði svefnherbergisdyr brá henni mikið. Það var blóð út um allt og rúmið var gegnblautt af blóði. Síðan sá hún líkið sem lá hálft út úr rúminu. Andlitið var svo illa farið að það var erfitt að sjá hver þetta var.
En Kathy vissi strax að þetta hlyti að vera lík Lily. Hún sá engan annan í svefnherberginu. Robert hélt sig til hlés á meðan Kathy fór um húsið og hinn skelfilegi sannleikur rann upp fyrir henni.
Öll Lin-fjölskyldan hafði verið myrt. Meira að segja strákarnir litlu, Henry og Terry, höfðu verið myrtir og lá nú blóðugir og lífvana. Sömu sögu var að segja af fjórða líkinu, það hlaut að vera Irene.
En það vantaði fjölskylduföðurinn Min.
Lögreglan kom á vettvang skömmu síðar. Vettvangsrannsóknin leiddi í ljós að fjölskyldan hafði verið myrt með öflugum höggum í andlit, hugsanlega með hamri.
Þegar lögreglumenn rannsökuðu hjónaherbergið fundu þeir lík Min undir sæng. Þess vegna hafði Kathy ekki séð hann. Harmleikurinn var nánast algjör. Eina ljósið í myrkrinu var að Brenda var á lífi.
Heim í harmleikinn
Brenda hafði ekki hugmynd um hvað hafði gerst þegar vinir hennar fóru að senda henni skilaboð og spyrja hvort það væri allt í lagi með hana og sendu henni tengla á fréttina um morðið á fjölskyldu hennar. Þegar hún opnaði tenglana þekkti hún heimili sitt á myndunum.
Þegar hún kom heim tók lögreglan á móti henni á flugvellinum í Sydney og þar voru einnig Robert og Kathy.
„Frænka mín grét og faðmaði mig. Það var þá sem ég áttaði mig á raunveruleikanum, að fjölskylda mín var ekki lengur hér,“ sagði Brenda síðar í heimildarmynd.
Afi hennar og amma buðu henni að búa hjá sér en þá kom í ljós að Robert og Kathy, sem voru barnlaus, höfðu þegar fyllt út nauðsynleg eyðublöð til að fá forræði yfir henni. Brenda flutti því til þeirra.
Á næstu vikum var staðfest að morðin fimm höfðu verið framin á milli klukkan 2 og 5.30 laugardaginn 18. júlí 2009. Engin ummerki um innbrot voru sjáanleg svo morðinginn hafði annað hvort haft lykil eða komist inn um ólæstar dyr eða glugga.
Blóðug skóför voru á mörgum stöðum í húsinu og voru þau eftir sömu skóna. Lögreglan gat dregið upp mynd af atburðarásinni út frá skóförunum.
Eftir að morðinginn kom inn í húsið, fór hann beint að rafmagnstöflunni og sló rafmagninu út. Hann gekk síðan á milli herbergja í myrkrinu og myrti fjölskylduna með hamri eða einhverju álíka.
Lögreglan gat ályktað að Terry og Henry hefðu vaknað við öskur og læti frá herbergi foreldra sinna og móðursystur. Henry, 12 ára, fór ekki út úr herberginu sínu og þar fann morðinginn hann og myrti með þremur höggum. Terry, 9 ára, reyndi að flýja og barðist fyrir lífi sínu þegar morðinginn fann hann.
Eitt atriði vakti sérstaka athygli lögreglunnar. Það var eitt herbergi sem morðinginn hafði ekki reynt að fara inn í, herbergi Brendu. Þess utan hafði engu verið stolið úr húsinu og engin ummerki voru um innbrot. Þess vegna taldi lögreglan að morðinginn þekkti fjölskylduna.
Brenda var að vonum niðurbrotin af sorg. Hún sagði lögreglunni að frændi hennar og frænka hugsuðu vel um hana og sagðist vera þakklát fyrir umönnunina.
En hún þagði yfir sannleikanum sem hún skammaðist sín svo fyrir og skýrði ekki frá honum fyrr en löngu síðar. Það var að Robert misnotaði hana kynferðislega hvað eftir annað.
Þetta skipti sköpum þegar kom að réttarhöldunum í málinu. Þarna var lögreglan nefnilega komin með ástæðuna fyrir fjöldamorðinu, að Robert var kynferðislega heltekin af Brenda og þess utan var hann öfundsjúkur út í tengdafjölskyldu sína því þau höfðu allt sem honum hafði mistekist – Góðar tekjur, börn og góður árangur í lífinu.
Misheppnaður og misheppnaður
Robert var menntaður háls-, nef- og eyrnalæknir þegar hann flutti frá Kína til Ástralíu. Honum tókst ekki að opna eigin læknastofu þegar hann og Kathy fluttu til Ástralíu 2002.
Hjónin ákváðu þá að opna veitingastað en reksturinn gekk illa og þau áttu í vandræðum með að láta enda ná saman.
Þegar Kathy hringdi í lögregluna heyrðist að Robert var á vettvangi með henni en hann var ekki þar þegar lögreglan kom þangað. Hann sagðist hafa þurft að sækja afann og ömmuna á flugvöllinn.
Þegar hann var yfirheyrður sagði hann að hann og Kathy hefðu fundið fimm lík í húsinu. En á þeim tímapunkti var ekki búið að finna lík Min. Þetta var mjög athyglisvert því Kathy sagði í yfirheyrslu að þau hefðu fundið fjögur lík.
Annað atriði vakti einnig athygli lögreglunnar. Robert hafði átt strigaskó, eins og blóðugu skóförin í húsinu voru eftir, en átti ekki lengur að eigin sögn. Það var því ekki hægt að tengja hann beint við þetta.
Robert og Kathy ættleiddu Brendu. Ekki var annað að sjá en þetta væri af hreinni góðmennsku en Brenda var einkaerfingi að eigum fjölskyldu sinnar. Þar sem hún var aðeins 15 ára fengu Robert og Kathy yfirráð yfir eigum hennar. Skömmu eftir að ættleiðingin var gengin í gegn tóku Robert og Kathy við rekstri söluturnsins og Robert henti afanum og ömmunni út.
Hringurinn þrengdist
Þegar tæpt ár var liðið frá morðinu hóf lögreglan leynilega vöktun á heimili Robert og Kathy. Lögreglan sagði Kathy frá blóðugu fótsporunum sem pössuðu við sérstaka strigaskó.
Lögreglan vonaðist til að Kathy myndi segja eitthvað við Robert og þannig hugsanlega kalla fram viðbrögð hjá honum. Í fyrstu gerðist ekkert en á næstu sex mánuðum náðust undarlegir atburðir á upptöku leynilegu myndavélanna á heimilinu. Robert sótti skókassa og skar hann í litla bita sem hann sturtaði niður úr klósettinu.
Lögreglan komst einnig að því að dagana eftir að líkin fundust, þreif Robert bílskúrinn sinn mjög vel.
Allt þetta varð til þess að hann var handtekinn, grunaður um morðin.
Húsleit var gerð heima hjá Robert og Kathy í framhaldi af handtökunni og fannst þá blóðblettur á bílskúrsgólfinu. Blóðið reyndist vera úr fjórum af fimm fórnarlömbunum.
Réttarhöldin
Robert var því færður fyrir dómara í árslok 2012 en hann neitaði sök.
Martröð Brendu hafði nú staðið yfir í rúmlega þrjú ár. Hún trúði því ekki að Robert hefði myrt fjölskyldu hennar og hún studdi hann í upphafi réttarhaldanna.
Saksóknarar lögðu gögn málsins fram og bentu á að Robert hefði hringt í lögregluna daginn eftir að líkin fundust til að breyta framburði sínum svo hann passaði við framburð Kathy.
Þess utan benti saksóknarinn á að Robert hefði haft aðgang að heimili fjölskyldunnar og hefði þekkt húsakynnin og að hann hefði vitað hver var heima og hver ekki.
Saksóknarinn sagði að Robert og Kathy hefðu farið saman heim eftir kvöldmatinn á föstudeginum. Þegar heim var komið gaf Roberg Kathy svefnlyf og gekk síðan heim til fjölskyldunnar þar sem hann fór inn, sló rafmagnið út og myrti fjölskylduna.
Vitnisburður Kathy og Brendu var Robert í hag en skömmu eftir að Brenda bar vitni gerði dómarinn hlé á réttarhöldunum vegna nýrra upplýsinga sem voru komnar fram.
Réttarhöldin hófust á nýjan leik 17. mars 2014 og að þessu sinni var framburður Brendu ekki hagstæður fyrir Robert.
Hún skýrði nú frá kynferðisofbeldinu sem hann hafði beitt hana. Það byrjaði áður en hann myrti fjölskyldu hennar og hélt áfram eftir að hún flutti heim til hans og Kathy.
Dómur var kveðinn upp 2017, sjö árum eftir morðin.
Robert var dæmdur í fimmfalt lífstíðarfangelsi. Eitt fyrir hvert morð.