Pressan

Bjarndýr drap mann og særði eiginkonu hans illa á heimili þeirra

Mynd
Svartbjörn. Mynd:US Fish and Wildlife Service

Bjarndýr réðst nýlega inn í hús í Mongólíu og varð karlmanni á fimmtugsaldri að bana og særði eiginkonu hans, sem er á sextugsaldri, lífshættulega. Hjónin bjuggu í útjaðri höfuðborgarinnar Ulannbaatar.

Talsmaður borgaryfirvalda skýrði frá þessu á fréttamannafundi. Hann sagði að konunni hafi tekist að flýja yfir til nágranna.

35 manna hópur veiðivarða var sendur til leitar að bjarndýrinu og almenningur var um leið hvattur til að vera á varðbergi.

Mjög hefur færst í vöxt að fólk rekist á bjarndýr í landinu en 754 tilkynningar um slíkt bárust á síðasta ári.

Veiðileyfi hafa verið gefin út í átta héruðum og verið er að útvega veiðivörðum á afskekktum svæðum byssur sem er hægt að skjóta deyfilyfjum úr.

Ekki er vitað með vissu hvað veldur því að fólk rekst nú oftar á bjarndýr en áður en umhverfisverndarsinnar telja að þar eigi loftslagsbreytingarnar og matarskortur hlut að máli. The Independent skýrir frá þessu.