Pressan

Bandarískur leyniþjónustumaður segir að bandarískir hermenn hafi barist við tveggja metra háar geimverur

Mynd
Ætli þessi sé tveggja metra há?

Það þarf nú mikið til nú orðið til að sögur um fljúgandi furðuhluti og geimverur veki mikla athygli á Internetinu því þar flýtur allt í slíkum sögum. En það sem David Grusch, fyrrum leyniþjónustumaður í Bandaríkjunum, sagði í hlaðvarpi Joe Rogan hefur fengið marga til að sperra eyrun og hlusta.

Grusch sagði að bandarískir hermenn hafi barist við risastórar geimverur sem líktust einna helst skriðdýrum. Þetta hafi gerst eftir að geimfar þeirra hrapaði til jarðar.

Hann sagði einnig að bandarísk yfirvöld viti um risastóra neðansjávarstöð þaðan sem óþekkt farartæki fara og koma.

Það er rétt að hafa í huga að þetta eru staðhæfingar Grusch sem eru ekki studdar neinum áþreifanlegum sönnunargögnum.

Grusch starfaði áður fyrir National Geospatial-Intelligence Agency og National Reconnaissance Office og hjá bandaríska flughernum.

Hann sagði að bandarískir hermenn hafi rekist á verur, sem líktust skriðdýrum, eftir að fljúgandi hlutur, sem líktist einna helst tic-tac, hafi hrapað til jarðar.  Hann sagði verurnar hafa verið rúmlega tveggja metra háar, með blettótta húð og líkami þeirra hafi líkst líkama górillu.

Hann sagði að geimverurnar hafi lifað hrapið af og síðan hafi bandarísku hermennirnir skotið þær og drepið því ógn var talin stafa af þeim.  Hann sagði að bandarískir hermenn hafi einnig fallið í átökunum en sagðist ekki vita hversu margir.

Það dregur ekki úr dulúð sögu hans að hann hélt því einnig fram að tvær gráar geimverur hafi einnig fundist á vettvangi og hafi þær verið dauðar. Hann sagði að þær hafi átt í átökum við skriðdýralíku geimverurnar.

Hann sagðist hafa séð myndbandsupptökur af dauðum verum, sem voru ekki frá jörðinni, sem hafi fundist dauðar á stað þar sem geimfar brotlenti. Hann sagði þessar verur hafa líkst fólki en verið með föla, bláhvíta húð. Samkvæmt frásögn hans þá sýndi upptakan aðgerðina þar sem þessar dauðu geimverur voru teknar úr flakinu. Þessar upptökur hafa ekki verið birtar opinberlega.

Þegar Joe Rogan spurði hann hvort almenningur fái einhvern tímann að sjá upptökur af þessu tagi sagði Grusch að það muni líklega gerast og bætti við að mikið sé til af slíkum upptökum.

Hvað varðar fyrrgreinda neðansjávarstöð sagði hann að háttsett fólk í bandaríska stjórnkerfinu viti af að minnsta kosti einni risastórri neðansjávarstöð sem er bækistöð fyrir óþekkt farartæki. Hann sagði að þessi stöð sé á stærð við nokkur fjölbýlishús. Þessar upplýsingar sagðist hann hafa frá fólki í stjórnkerfinu, úr leyniskjölum og myndbandsupptökum sem eru stimplaðar sem leynigögn.

Hann vildi ekki skýra frá hvar þessi stöð sé og bar fyrir sig að þær upplýsingar væru viðkvæmar fyrir bandarísk flotann.